Fréttir
Kaldvík fær undanþágu: Þarf ekki að standa við samninga sína við lánveitendur
Kaldvík hefur sent tilkynningu til kauphalla um að félagið hafi samið við lánveitendur um tímabundna undanþágu frá skilyrðum lánasamninga. Ástæðan er að um þessi mánaðamót uppfyllir Kaldvík hvorki skilyrði um lágmarkslausafjárstöðu né kröfu um tiltæka fjármuni...
Auglýsingaherferð í neðanjarðarlestakerfi London: Sniðgöngum eldislax
Þetta er hluti af auglýsingaherferð sem má meðal annars sjá á neðarjarðarlestarstöðvum London þessa dagana á vegum baráttusamtakanna Slingshot. Þarna er vakin athygli á því ótrúlega framferði sjókvíaeldisfyrirtækja að senda á neytendamarkað eldislax sem hefur orðið...
Harmagrátur fyrirtækja sem borga engan tekjuskatt yfir ofursköttum
Á nýafstaðinni ráðstefnu börmuðu hagsmunagæslumenn sjókvíaeldisfyrirtækjanna sér yfir meintum ofursköttum hér á landi. Þrjú af fjórum þessara fyrirtækja hafa hins vegar aldrei greitt tekjuskatt á Íslandi og það fjórða aðeins greitt smávægilegan tekjuskatt í tvö ár af...
Sjókvíaeldið borgar enga tekjuskatta: Skattasniðganga er hluti af viðskiptamódelinu
Síðastliðinn áratug hafa stóru sjókvíaeldisfyrirtækin sem starfa á Íslandi greitt 0,2% af veltu í tekjuskatt á Íslandi. Árin þar á undan greiddu þau engan tekjuskatt. Öll þessi fyrirtæki eru að meirihluta í eigu norskra sjókvíaeldisrisa. Umræðan sem fulltrúar þeirra...
Meðvirkni með sjókvíaeldi opinberast í viðbrögðum við sjóreknum kvíum Arnarlax
Viðbrögð lögreglunnar í þessari frétt sem birtist í vikunni eru um margt dæmigerð fyrir inngróna meðvirkni stofnana landsins með vondum vinnubrögðum sjókvíaeldisfyrirtækja sem geta ógnað almannahag. Fréttin segir frá því að í annað skipti á um átta mánaða tímabili er...
Halla Hrund stendur sig vel
HallaRétt er að halda til haga að þegar þetta meingallaða strandsvæðaskipulag var innleitt var innviðaráðherra flokksbróðir hennar Sigurður Ingi Jóhannsson. Hann hafði að engu fjölmargar ábendingar um að það mætti ekki að lögfesta án mikilvægra lagfæringa....
Marglyttuplágur eru óumflyjanlegur fylgifiskur laxeldis á Austfjörðum
2021 Gríðarlegur fjöldi af eldislaxi drepst vegna marglyttna i Reyðarfirði. „Við erum búin að bregðast við þessum marglyttuvanda sem er hér í firðinum. Og ég held að við séum að ná góðum tökum á þessu,“ segir Jens Garðar Helgason, þáverandi framkvæmdastjóri...
Jón Kaldal ræðir lagareldisfrumvarpið í Sjávarútvegsspjallinu á Samstöðinni
Talsmaður okkar hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum, Jón Kaldal, er gestur Grétars Mar Jónssonar í nýjasta þætti Sjávarútvegisspjallsins þar sem laxeldi í sjó og á landi var umræðuefnið. Mikil átök voru um lagareldisfrumvarp atvinnuvegaráðherra síðastliðið vor. Þá sat...
Viðreisn sagði eitt gildir fyrir kosningar, en gerir allt annað eftir kosningar
Fyrir kosningar vildi Viðreisn friða Seyðisfjörð. Eftir kosningar vill Viðreisn ekki bara sjókvíeldi í Seyðisfjörð heldur bæta við Mjóafirði. Þó er alþekkt að eldislax á ömurlega vist framundan í báðum fjörðum. Sjókvíeldi lagðist þar af vegna þess að eldislax drapst...
Stjörnukokkar allstaðan að úr heiminum fordæma lax úr sjókvíaeldi
Í mörg ár hafa allir bestu matreiðslumeistarar Íslands verið með okkur í baráttunni gegn opnu sjókvíaeldi á laxi. Hér er bréf sem var að birtast frá breiðfylkingu kollega þeirra í öðrum löndum. Fleiri en 120 stjörnukokkar, þar af fleiri en 90 sem eru með Michelin...
Samstöðufundir á Austurvelli með Seyðfirðingum 11 október
Takið frá daginn! Samstöðufundur á Austurvelli með Seyðfirðingum 11. október. Seyðisfjörður 2023. Um 150 manns úr litlu samfélagi stilltu sér saman upp og mynduðu NEI og 75% – niðurstöðu könnunar Múlaþings um afstöðu Seyðfirðinga til sjókvíaeldis. Sungu lagið Víkivaka...
Katrín Oddsdóttir skrifar um fjárhagsstöðu Kaldvíkur
Einsog hefur áður komið fram hér þá stendur ekki steinn yfir steini í rekstri Kaldvíkur. Katrín Oddsdóttir skrifar: UM FJÁRHAGSSTÖÐU KALDVÍKUR Kaldvík fékk rekstrar- og starfsleyfi til sjókvíaeldis í Seyðisfirði í síðustu viku. Vinur minn sendi mér þessa greiningu sem...











