Síðastliðinn áratug hafa stóru sjókvíaeldisfyrirtækin sem starfa á Íslandi greitt 0,2% af veltu í tekjuskatt á Íslandi. Árin þar á undan greiddu þau engan tekjuskatt.
Öll þessi fyrirtæki eru að meirihluta í eigu norskra sjókvíaeldisrisa. Umræðan sem fulltrúar þeirra stóðu fyrir á ráðstefnunni Lagarlíf, sem fór fram í vikunni, um meinta ofurskattlagningu hér á landi á sjókvíaeldi var einstaklega óforskömmuð en um leið afar kunnugleg.
Árið 2022 breyttu norsk stjórnvöld fyrirkomulagi skattheimtu á sjókvíaeldisfyrirtækin þar í landi til að reyna að tryggja norsku þjóðinni gjald fyrir afnot af fjörðum landsins.
Norsku sjókvíaeldisrisarnir hafa alltaf barist um á hæl og hnakka gegn skattheimtu. Viðbrögðin við nýja laxaskattinum voru að fá skattasérfræðinga, endurskoðendur og lögfræðinga, til að breyta uppsetningu í rekstri fyrirtækjanna.
Afleiðingarnar eru þær að nú fjórum árum síðar hafa aðeins skilað sér í norska ríkissjóðinn 12 prósent af áætluðum skatttekjum.
Skattasniðganga er hluti af viðskiptamódeli þessara norsku iðnrisa, sem eiga sjókvíaeldisfyrirtækin á Íslandi að langstærstum hluta.
Hér er sagan um það hvernig norsku sjókvíaeldisrisarnir fóru að því að koma sér undan laxaskattinum í Noregi.
Og hér grein um málið sem birtist í Fiskifréttum:
Finn Kinserdal hjá Norska hagfræðiskólanum segir að fljótlega eftir að laxaskatturinn hafi verið kynntur hafi fjöldi skattasérfræðinga í þjónustu stóru eldisfyrirtækjanna kannað leiðir til að minnka áhrifin. Meðal annars hafi fyrirtækjum verið skipt upp þannig að þau fyrirtækjanna sem greiða eigi skattinn séu látin skila minni hagnaði.