2021

Gríðarlegur fjöldi af eldislaxi drepst vegna marglyttna i Reyðarfirði.

„Við erum búin að bregðast við þessum marglyttuvanda sem er hér í firðinum. Og ég held að við séum að ná góðum tökum á þessu,“ segir Jens Garðar Helgason, þáverandi framkvæmdastjóri sjókvíeldisfyrirtækis Laxa, nú varaformaður Sjálfstæðisflokksins og alþingismaður.

2026

Gríðarlegur fjöldi eldislaxa, margfaldur fjöldi íslenska laxastofnsins, drepst af völdum marglyttna í Reyðarfirði.

„Við höfum aldrei séð annað eins,“ segir Vidar Aspehaug forstjóri sjókvíaeldisfyrirtækisins Kaldvíkur, sem varð til við samruna Laxa og Fiskeldis Austfjarða.

Allt heimafólk á Austfjörðum hefði getað sagt þessum tveimur mönnum að marglyttur eru hluti af lífríki Austfjarða og að sú staðreynd hafi orðið til þess að Samherji ákvað árið 2006 að hætta sjókvíaeldi á Austfjörðum, einmitt vegna ítrekaðs mikils dauða eldislaxa í sjókvíunum.

Okkur grunar reyndar að báðum mönnum, Jens og Vidar, sé vel kunnugt um hversu marglyttur eru útbreiddar í lífríki Austfjarða. Annað er eiginlega útilokað vegna þess hversu eldislaxar hafa drepist oft og í miklum mæli í sjókvíum fyrir austan. Þeir vita líka að þessi hryllilegi dauði mun halda áfram og að stjórnvöld með aðgerðarleysi sínu virðast engan áhuga á að stöðva þessa miskunnarlausu meðferð eldisdýrunum.

Frétt RÚV frá 2001.