Talsmaður okkar hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum, Jón Kaldal, er gestur Grétars Mar Jónssonar í nýjasta þætti Sjávarútvegisspjallsins þar sem laxeldi í sjó og á landi var umræðuefnið.

Mikil átök voru um lagareldisfrumvarp atvinnuvegaráðherra síðastliðið vor. Þá sat Grétar Mar einmitt á þingi en hann er varaþingmaður Flokks fólksins.