Fyrir kosningar vildi Viðreisn friða Seyðisfjörð. Eftir kosningar vill Viðreisn ekki bara sjókvíeldi í Seyðisfjörð heldur bæta við Mjóafirði. Þó er alþekkt að eldislax á ömurlega vist framundan í báðum fjörðum.
Sjókvíeldi lagðist þar af vegna þess að eldislax drapst þar í stórum stíl.
Atvinnuvegaráðherra virðist bara vera slétt sama um dýravelferð í þessum miskunnarlausa iðnaði.
Við tökum undir hvert orð VÁ-Félags um vernd fjarðar:
Þegar öllu er snúið á hvolf.
Eftir sex ár í kerfinu, þar sem stofnanir ríkisins hafa þurft að þræða sig í gegnum hverja athugasemdina á fætur annarri til að koma þessum leyfum út, segir atvinnuvegaráðherra þau nú sennilega „ígrunduðustu“ eldisleyfi sem gefin hafa verið.
En langur afgreiðslutími er ekki sönnun þess að ferlið hafi verið gott. Hann getur líka verið merki um hversu illa framkvæmdin passar inn í fjörðinn og hversu langt þurfti að ganga til að finna henni leið í gegnum kerfið.
Við höfum fylgst með hverju skrefi. Bent á annmarkana. Haldið utan um pappírsslóðina. Og aftur og aftur séð hvernig lausnin varð ekki að spyrja hvort sjókvíaeldi ætti yfirhöfuð heima í þessum þrönga firði, heldur hvernig væri hægt að koma því þar fyrir.
Og nú er sjálf sú þrautaganga orðin rök fyrir því hversu vel málið hafi verið ígrundað.
Pappírsslóðin hverfur ekki, sama hversu oft sögunni er snúið við. Þetta mun ekki eldast vel.