Árnar þagna – heimildarmynd

Heimildarmyndin Árnar þagna eftir Óskar Pál Sveinsson fjallar um áhrif sjókvíaeldis á laxi á lífríki og afkomu bænda sem hafa byggt lífsviðurværi sitt á hlunnindum af stangveiðum í Noregi og á Íslandi.

Í júní 2024 fyrirskipaði Umhverfisstofnun Noregs (Miljødirektoratet) lokun 33 af þekktustu laxveiðiám landsins vegna þess skaða sem sjókvíaeldi og loftslagsbreytingar hafa valdið á villtum laxastofnum. Á einu augnabliki hvarf stór hluti lifibrauðs fjölskyldna sem hafa byggt afkomu sína á stangveiðihlunnindum í marga ættliði.

Í myndinni eru viðtöl við eigendur norskra laxáa, sem tekin voru nokkrum dögum eftir að fótunum var kippt undan tilveru þeirra, auk þess sem rætt er við fólk í sveitum Íslands um þá framtíð sem mögulega bíður þess og fjölskyldna þess.

Árnar þagna

– með íslenskum texta

Silent Rivers

– With English subtitles

Silent Rivers

– Med norsk tekst

Einhverjar spurningar?

Hafðu samband

Skilmálar og persónuvernd

Íslenski náttúruverndarsjóðurinn er ekki rekinn í ágóðaskyni ( non – profit ).
Hann er sjálfseignarstofnun og starfar samkvæmt lögum nr. 19/1988 um sjóði og stofnanir.

Íslenski náttúruverndarsjóðurinn er félag í: