Takið frá daginn! Samstöðufundur á Austurvelli með Seyðfirðingum 11. október.

Seyðisfjörður 2023.
Um 150 manns úr litlu samfélagi stilltu sér saman upp og mynduðu NEI og 75% – niðurstöðu könnunar Múlaþings um afstöðu Seyðfirðinga til sjókvíaeldis. Sungu lagið Víkivaka á sama tíma.
Síðan höfum við skrifað, mótmælt, fundað, rannsakað, vakið hvert skref og bent aftur og aftur á annmarka málsins.
En leyfin komu samt. Fyrir hvern og framtíð hvers ?
Þess vegna þurfum við að mæta aftur. Og nú er þetta stærra en Seyðisfjörður.
Austurvöllur og Seyðisfjörður
11. október kl. 15:00
segjum við STOPP. Verjum Seyðisfjörð og íslenska náttúru 💚
Mætum. Deilum. Látum sjást hversu mörg við erum! Ríkisstjórninni veitir greinilega ekki af áminningu um fyrir hvern hún á að vinna. ❤️