Viðbrögð lögreglunnar í þessari frétt sem birtist í vikunni eru um margt dæmigerð fyrir inngróna meðvirkni stofnana landsins með vondum vinnubrögðum sjókvíaeldisfyrirtækja sem geta ógnað almannahag.

Fréttin segir frá því að í annað skipti á um átta mánaða tímabili er laus flothringur úr sjókví á reki í Patreksfirði.

Viðbrögð forstjóra Matvælastofnunar (MAST), sem er leyfisveitandi fyrir eldið, í fyrra tilvikinu voru afgerandi: það er „ekki jákvætt að það sé fljótandi aðskotahlutur í sjónum og væntanlega hefur það mest áhrif á siglingaröryggi. Þetta er sem sagt bara í raun og veru áhætta sem aðskotahlutur þarna.“

Í viðtali við fréttastofu RÚV um sama atburð, sem varð í lok janúar á þessu ári, lýsti forstjóri Arnarlax því yfir að innri rannsókn væri hafin hjá Arnarlaxi til að varpa ljósi á aðdragandann og gripið yrði til aðgerða til að tryggja að þetta endurtæki sig ekki.

Um seinna tilvikið, sem varð nú á dögunum, er rætt við yfirlögregluþjón hjá lögreglunni á Vestfjörðum, sem fullyrðir samkvæmt frétt RÚV annars vegar að „engin hætta“ hafi skapast en líka að hættan ekki verið „eins mikil“. Væntanlega þá í samanburði við fyrra atvikið.

Af hverju yfirlögregluþjónninn kýs að gera sem minnst úr þessum atburði er sérstakt athugunarefni.

Fram hefur komið fram áður að bæði forstjóri MAST og forstjóri Arnarlax litu sambærilegan atburð mjög alvarlegum augum. MAST hóf rannsókn og forstjóri Arnarlax lofaði aðgerðum sem myndu tryggja að þetta endutæki sig ekki. Augljóslega hefur ekki verið ráðist í þær aðgerðir.

Lögregluembættið fyrir vestan kemur hins vegar fram einsog PR fulltrúi fyrirtækisins með óumbeðnar afsakanir fyrir hönd Arnarlax.

Munu þeir sem verða gripnir fyrir að aka yfir á rauðu ljósi í umdæminu fá sömu meðferð? Að mat lögreglunnar á Vestfjörðum sé að „engin hætta hafi skapast“ eða að minnstan kosti „ekki mikil“.

Frétt RÚV um sjókvína í Patreksfirði.

Þetta er í annað sinn á þessu ári sem sjókví rekur á land í Patreksfirði, þar sem Arnarlax er með sjókvíaeldi.