Kaldvík hefur sent tilkynningu til kauphalla um að félagið hafi samið við lánveitendur um tímabundna undanþágu frá skilyrðum lánasamninga. Ástæðan er að um þessi mánaðamót uppfyllir Kaldvík hvorki skilyrði um lágmarkslausafjárstöðu né kröfu um tiltæka fjármuni samkvæmt veltulánafyrirgreiðslu félagsins.
Rekstur Kaldvíkur hefur verið í svo hrikalegum málum undanfarin ár að eigendur félagsins hafa ítrekað þurft að leggja því til aukið fjármagn. Í júní síðastliðnum voru hlutabréf Kaldvíkur athugunarmerkt af Nasdaq vegna þess að í ársreikningi, sem var skilað langt eftir frest, koma fram athugasemdir um að aðstæður væru fyrir hendi sem gætu skapað vafa um áframhaldandi rekstrarhæfi félagsins (e. going concern).
Kaldvík tapaði 40,5 milljónum evra, tæplega 6 milljörðum króna árið 2025, og 42,1 milljón evra, 6,3 milljarðar króna fyrstu sex mánuði þessa árs.
Tímabundna undanþágan sem Kaldvík fékk til að koma skilyrðum lánasamninga í lag gildir til 26. október. Fáheyrt er að lánveitendur gefi svo stuttan frest. Blasir við að eigendur Kaldvíkur þurfa að opna veskið enn á ný og setja meira fé í félagið til að forða því frá að fara í þrot.
Kaldvík er að meirihluta í norskri eigu en sjávarútvegsfyrirtækið Ísfélag Vestmannaeyja keypti hlut í félaginu í mars 2023.
Frá kaupum Ísfélagsins hefur gengið í Kaldvík fallið um 80 prósent og óinnleyst tap upp á marga milljarða hlaðist upp.
Ísfélagið hefur þar að auki haldið áfram að lána Kaldvík háar upphæðir, sem að hluta hefur verið breytt í hlutafé, og mun væntanlega enn og aftur þurfa að leggja til fé nú í október.
Þessi kaup Ísfélagsins stefna í að verða versta fjárfesting seinni tíma í íslensku viðskiptalífi.
Sérstaka athygli vekur að þarna er verið að færa gríðarlega fjármuni úr íslenskum sjávarútvegi í óskyldan rekstur. Upphæðir sem eru margfaldar á við hækkun veiðigjalda sem Ísfélagið taldi sig illa geta staðið undir þegar þau voru hækkuð lítillega í fyrra.
Annar flötur á þessari stöðu Kaldvíkur, sem verður gjaldþrota nema eigendur komi með meiri fjármuni til rekstursins, er sú ákvörðun Matvælastofnunar og Umhverfisstofnunar að gefa út leyfi til fyrirtækisins fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði þrátt fyrir kauphöllin í Osló hafi fyrr á árinu sett Kaldvík á válista þar sem vafi væri á „áframhaldandi rekstrarhæfi félagsins.“