Fréttir

Íslensk stjórnvöld svara ekki upplýsingabeiðni ESA, eftirlitsstofnunar EFTA

ESA, eftirlitsstofnun EFTA , sendi erindi til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, sem fulltrúa íslenskra stjórnvalda, þann 30. janúar, með beiðni um upplýsingar um útgáfu leyfa fyrir sjókvíaeldi án þess að flokkun á ástandi vatnshlota lægi fyrir áður. Það gengur gengur vatnatilskipun ESB sem innleidd var hér á landi í lögum um stjórn vatnamála.

Frestur til að svara beiðninni var gefinn til 2. mars og síðar framlengdur til 17. mars að ósk íslenskra stjórnvalda. Þetta er tíminn sem er liðinn frá því fresturinn rann út:

00
:
00
:
00
:
00
„Saman gegn fúski“ – Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar

„Saman gegn fúski“ – Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar

„Það hafa horfið 70-80 störf úr bænum vegna ákvörðunar Síldarvinnslunnar um að loka starfsemi sinni og hverfa með kvótann. Gömul saga og ný. Fyrirtækið sá ekki tækifærið í uppbyggingu á öruggu og öflugu hafnarsvæði Seyðisfjarðar heldur setti tæpa átján milljarða í...

Sílenska martröðin kemur norður

Sílenska martröðin kemur norður

Þetta er fyrirsögnin á nýbirtri frétt sem hér fylgir og segir frá því að skelfileg bakteríusýking, sem hefur verið útbreidd í sjókvíeldi á laxi við Síle og útheimt gríðarlega notkun sýklalyfja, hefur nú ítrekað komið upp í sjókvíaeldi við Noreg og Skotland. Það þýðir...

Atvinnuvegaráðherra lýsir yfir stríði við eigin kjósendur

Atvinnuvegaráðherra lýsir yfir stríði við eigin kjósendur

Erfitt er að lýsa þeirri ákvörðun Hönnu Katrínar Friðrikssonar atvinnuvegráðherra að opna enn einn fjörðinn fyrir opnu sjókvíaeldi á laxi með öðrum orðum. Eðlilega hefur þetta skref hennar hleypt illu blóði í stuðningsfólk ríkisstjórnarinnar. Í þeim hópi er andstaðan...