Hér er hlekkur á fréttaskýringu þar sem er rætt við Norðmanninn Sondre Eide, laxeldismann af þriðju kynslóð. Fjölskylduveldið var byggt upp á opnum sjókvíum en Sondre áttaði sig fyrir all nokkru að sú tækni var komin að leiðarlokum.

Fyrirtæki hans hefur þróað lokaðar sjókvíar þar sem allt skólp er hreinsað, enginn fiskur sleppur og dauði eldisdýra er innan við 3 prósent í eldislotunni.

Í opnum sjókvíum er allt skólp losað óhreinsað beint í hafið, eldislaxar sleppa látlaust og dauðinn er um og yfir 40 prósent þann tíma sem eldislaxarnir eru í sjó.

„Þeir sem segja að lokaðar sjókvíar séu ekki tilbúnar fyrir markaðinn hafa rangt fyrir sér,“ segir Sondre í greininni.

Þar er líka vitnað í þingmann á norska Stórþinginu sem segir: „Laxeldismenn eiga ekki lengur að fá að græða milljarða á ömurlegri dýravelferð og eyðileggingu fjarða.“

Miðað við orðræðu Hönnu Katrínar Friðrikssonar, atvinnuvegaráðherra Íslands, virðist hún þó einmitt vilja leyfa sjókvíaeldinu að halda áfram að níðast á eldisdýrunum, missa eldislaxa frá sér og hella óhreinsuðu skólpi í firði landsins: fiskaskít, fóðurleifum, örplasti, skordýraeitri, lyfjum og þungmálmum.

Ef ekki þá hefði hún átt að láta sjókvíaeldisfyrirtækin vita að þau verði að bæta ráð sitt frekar en að tilkynna að hún vilji opna enn einn íslenska fjörðinn fyrir þessu mengandi og miskunnarlausa iðnaði.

Nánar má lesa um þetta á vef Bergens Tidende (áskriftar krafist)