Við mælum eindregið með því að hlusta á þáttinn af Þetta helst sem hér fylgir hlekkur á. Þar er rætt við Seyðfirðinginn Sigfinn Mikaelsson sem stýrði sjólvíaeldi í fimmtán ár en er nú félagi í umhverfisverndarsamtökunum Vá – félag um vernd fjarðar sem berst gegn sjókvíaeldi.

„Ég þekki upp á hár allan sóðaskapinn í kring um þetta“ og ,,þetta rústar náttúrunni og fer illa með fiskinn,“ segir hann meðal annars í þættinum.

Skylduhlustun!

Viðtalið er aðgengilegt á vef RÚV:

Matvælaráðherra, Hanna Katrín Friðriksson, sagði frá því á Sjávarútvegsdeginum fyrr í vikunni að hún hefði falið Hafrannsóknastofnun að gera burðarþolsmat og tillögur að eldissvæðum í Mjóafirði. Íbúar Mjóafjarðar eru 11 talsins.

Hvað segja íbúar á Austfjörðum um þetta fyrirhugaða eldi?

Rætt er við Aðalheiði Elfríð Heiðarsdóttur, vitavörð og íbúa á Dalatanga í Mjóafirði á Austfjörðum, um þetta laxeldi.

Fjölskylda Aðalheiðar hefur búið á Dalatanga í bráðum 60 ár. Fjölskyldan hefur séð um vitann og veðurathugnarstöðina á Dalatanga og hefur því reynsla af búsetu í Mjóafirði í langan tíma.

Einnig er rætt við Seyðfirðinginn og náttúruverndarsinnann Sigfinn Mikaelssson og bæjarstjóra Fjarðabyggðar, Jónu Árný Þórðardóttur.