Hér eru skilaboð frá baráttusystkinum okkar í VÁ – félagi um vernd fjarðar. Dreifum þessu eins og átján vindstiga austanstormur!

Nú eru komin fimm ár af stjórnsýslufúski í Seyðisfirði þar sem reynt hefur verið að þrýsta sjókvíaeldi inn í fjörð sem rúmar það ekki.

Þetta hefur reynt á samfélagið. Íbúar vilja atvinnuuppbyggingu og meirihluti vill hafa það í sátt við náttúruna.

Seyðisfjörður á skilið heiðarlegt ferli og virka innviðauppbyggingu með samgönguöryggi til sjós og lands í forgangi.

Við biðjum landsmenn að standa með Seyðisfirði og kalla eftir því að stjórnvöld hlusti, tryggi öryggi íbúa og innviða og velji sátt en ekki sundrungu.

Stöðvum fúskið – verndum fjörðinn!