Erfitt er að lýsa þeirri ákvörðun Hönnu Katrínar Friðrikssonar atvinnuvegráðherra að opna enn einn fjörðinn fyrir opnu sjókvíaeldi á laxi með öðrum orðum.
Eðlilega hefur þetta skref hennar hleypt illu blóði í stuðningsfólk ríkisstjórnarinnar. Í þeim hópi er andstaðan við þennan mengandi og ómannúðlega iðnað margfalt meiri en stuðningurinn.
Neikvæðnin í garð sjókvíaeldi er reyndar afgerandi:
– í öllum aldurs- og tekjuhópum
– meðal karla og kvenna
– í öllum kjördæmum
Þetta kemur fram í nýjustu skoðunakönnun Gallups, sem var gerð fyrir fáeinum mánuðum. Myndin sem hér fylgir er þaðan.
Að greiða veg sjókvíeldis er þvert á það sem flestir frambjóðendur ríkisstjórnarflokkanna sögðu í aðdraganda kosninganna fyrir ári.
Línan þar var almennt sú að sjókvíaeldisfyrirtækin yrðu að sýna að þau réðu við núverandi umfang starfseminnar áður en lengra er haldið.
Það hefur ekki gerst. Þvert á móti. Gríðarlegur dauði hefur verið í sjókvíunum, fiskur sloppið og rekstrartap fyrirtækjanna nemur um átta milljörðum króna fyrstu níu mánuði ársins. Þau greiða ekki tekjuskatt hér á landi.
Samkvæmt könnun Gallups er neikvæðni í garð sjókvíaeldis yfir 60 prósent meðal stuðningsfólks allra flokka nema Sjálfstæðisflokks, þar sem hlutfallið er þó jafnt, og Framsóknarflokksins en þar er andstaðan afgerandi meiri en stuðningurinn.
Svona er staðan:
RÍKISSTJÓRNIN
Samfylkingin
- 80% neikvæð
- 5% jákvæð
- 15% hvorki né
Viðreisn
- 70% neikvæð
- 5% jákvæð
- 25% hvorki né
Flokkur fólksins
- 70% neikvæð
- 14% jákvæð
- 26% hvorki né
STJÓRNARANDSTAÐAN
Miðflokkurinn
- 63% neikvæð
- 29% jákvæð
- 8% hvorki né
Framsóknarflokkurinn
- 40% neikvæð
- 28% jákvæð
- 31% hvorki né
Sjálfstæðisflokkurinn
- 35% neikvæð
- 35% jákvæð
- 30% hvorki né
Aðrir flokkar
- 78% neikvæð
- 0% jákvæð
- 22% hvorki né
Ekki er síður upplýsandi að skoða viðhorf meðal íbúa á Norðausturlandi þar sem annars vegar Kleifar vilja koma sjókvíum í Eyjafjörð, og hins vegar þar sem atvinnuvegaráðherra vill nú auka umfang sjókvíaeldis á Austfjörðum. Andstaðan í þessu kjördæmi er enn meiri en annarsstaðar og stuðningurinn umtalsvert minni:
- 68% neikvæð gagnvart sjókvíaeldi
- 10% jákvæð
- 22% hvorki né
Ákvörðun Hönnu Katrínar er þvert á það sem flestir frambjóðendur ríkisstjórnarflokkanna boðuðu á fjölmennum fundum í aðdraganda kosninganna fyrir ári síðan.
Hvað gengur ráðherranum til? Er hún að keppast við fyrir hönd ríksstjórnarinnar að losa sig við stuðningsfólk sitt?