Fréttir

Íslensk stjórnvöld svara ekki upplýsingabeiðni ESA, eftirlitsstofnunar EFTA

ESA, eftirlitsstofnun EFTA , sendi erindi til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, sem fulltrúa íslenskra stjórnvalda, þann 30. janúar, með beiðni um upplýsingar um útgáfu leyfa fyrir sjókvíaeldi án þess að flokkun á ástandi vatnshlota lægi fyrir áður. Það gengur gengur vatnatilskipun ESB sem innleidd var hér á landi í lögum um stjórn vatnamála.

Frestur til að svara beiðninni var gefinn til 2. mars og síðar framlengdur til 17. mars að ósk íslenskra stjórnvalda. Þetta er tíminn sem er liðinn frá því fresturinn rann út:

00
:
00
:
00
:
00
Af valkvæðum áhyggjum Matvælaeftirlitsins af dýravelferð

Af valkvæðum áhyggjum Matvælaeftirlitsins af dýravelferð

Í færslunni sem hér fylgir segir veitingamaðurinn Guðfinnur Sölvi Karlsson á rokkbarnum Lemmy frá merkilegri heimsókn á staðinn: „Matvælaeftirlitið kom á LEMMY áðan og sögðu að fiskar i fiskabúrinu okkar mega líklegast ekki vera því það er svo mikilli rokktónlist og...

Mikil örplastmengun í hafsvæðum við Ísland

Mikil örplastmengun í hafsvæðum við Ísland

Sjókvíaeldi á laxi er uppspretta gríðarlegrar örplastsmengunar á Vestfjörðum og Austfjörðum. Svo til allur búnaður í þessum skaðlega iðnaði er úr plastefnum. Flothringirnir sem netin hanga á, sjálfir netapokarnir og margir kílómetrar af fóðurrörum sem kvíslast um...