Við vonum að Inga Sæland og Kristrún Frostadóttir komi vitinu fyrir Viðreisn.
Vísir fjallar um harðorða grein Jóns Kaldal:
Jón Kaldal, talsmaður Íslenska náttúruverndarsjóðsins, biðlar til Ingu Sæland, formanns Flokks fólksins, að grípa í taumana og stöðva þau áform sem birtast í frumvarpi Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra.
Jón ritar harðorða grein á Vísi þar sem hann vitnar í frumvarp til laga um lagareldi sem Hanna Katrín lagði fram til samráðs seint í desember…
…
Hann gagnrýnir harðlega hina pólitísku sýn sem birtist í þessum drögum Hönnu Katrínar en þau gera … „Viðreisn ekki aðeins að harðsnúnasta stóriðju- og sérhagsmunagæsluflokki seinni tíma heldur fer líka af hörku gegn sjónarmiðum kjósenda Viðreisnar og hinna flokkanna í ríkisstjórn landsins.“
Jón er orðinn harla vondaufur um að þessi mál verði tekin þeim tökum sem hann telur eðlileg og reyndar meirihluti almennings samkvæmt skoðanakönnunum. „Samstarfsflokkar Viðreisnar hljóta að taka í taumana. Vonandi eiga málleysingjarnir áfram traust skjól hjá Ingu Sæland. Það dýraníð á iðnaðarskala sem Hanna Katrín boðar má ekki verða að lögum.“