Í færslunni sem hér fylgir segir veitingamaðurinn Guðfinnur Sölvi Karlsson á rokkbarnum Lemmy frá merkilegri heimsókn á staðinn:

„Matvælaeftirlitið kom á LEMMY áðan og sögðu að fiskar i fiskabúrinu okkar mega líklegast ekki vera því það er svo mikilli rokktónlist og þeim líður örugglega illa!“

Við getum ekki annað en fagnað þessum áhuga Matvælastofnunar (MAST) á velferð fiska og bíðum nú eftir að heyra frá fulltrúum stofnunarinnar um aðbúnað eldislaxa í sjókvíum við landið.

Þó ekki séu enn komnar tölur fyrir desember liggur fyrir að aldrei hafa fleiri eldislaxar drepist í kvíunum en á síðasta ári. Stefnir í að dauðinn verði um 20 prósent meiri 2025 en hann var á fyrra metári 2024. Sjókvíaeldisfyrirtækin létu rúmlega fimm milljón eldislaxa drepast frá janúar til nóvember í fyrra.

Verstu níðingarnir eru hjá Kaldvík á Austfjörðum sem hafa látið um það bil þriðja hvern eldislax drepast hjá sér hvort ár, 2024 og 2025.

Í lagareldisfrumvarpsdrögum Hönnu Katrínar Friðrrikssonar atvinnuvegaráðherra er slegin skjaldborg um þetta dýraníð á iðnaðarskala með ákvæðum sem leysa sjókvíaeldisfyrirtækin undan ábyrgð á því að bæta aðbúnað eldisdýranna.

Bera þeir kaflar sem fjalla um „afföll“ (og fleiri) í drögum atvinnuvegaráðherra augljós merki um að hafa verið skrifaðir af lögfræðingum eldisfyrirtækjanna.