Við hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum höfum skilað sameiginlegri umsögn með Landvernd umhverfisverndarsamtök um áform atvinnuvegaráðherra um lagasetningu – Frumvarp til laga um lagareldi.
Við ítrekum að grunnforsenda lagasetningar um laxeldi í sjó og á landi skal byggja á því að engir villtir laxastofnar verði fyrir spjöllum vegna erfðablöndunar við eldislax.
Við leggjum til að í nýjum lögum um lagareldi verði kveðið á um að ekki verði gefin út fleiri leyfi fyrir sjókvíaeldi i opnum netapokum og sett verði inn sólarlagsákvæði um gildandi leyfi þar sem kveðið verður á um að allar opnar sjókvíar verði farnar úr hafinu við Ísland innan þriggja ára.
Hér má lesa þær umsagnir sem hafa borist um áform atvinnuvegaráðherra. Við viljum vekja sérstaka athygli á umsögn Slow Food samtakanna.

