Fréttir

Íslensk stjórnvöld svara ekki upplýsingabeiðni ESA, eftirlitsstofnunar EFTA

ESA, eftirlitsstofnun EFTA , sendi erindi til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, sem fulltrúa íslenskra stjórnvalda, þann 30. janúar, með beiðni um upplýsingar um útgáfu leyfa fyrir sjókvíaeldi án þess að flokkun á ástandi vatnshlota lægi fyrir áður. Það gengur gengur vatnatilskipun ESB sem innleidd var hér á landi í lögum um stjórn vatnamála.

Frestur til að svara beiðninni var gefinn til 2. mars og síðar framlengdur til 17. mars að ósk íslenskra stjórnvalda. Þetta er tíminn sem er liðinn frá því fresturinn rann út:

00
:
00
:
00
:
00
Undirskriftasöfnun: Verndum Seyðisfjörð

Undirskriftasöfnun: Verndum Seyðisfjörð

Undirskriftalistann má finna hér. Nú hafa 12.407 skrifað undir. Við undirrituð biðlum til stjórnvalda að stöðva leyfisveitingu til sjókvíaeldis í Seyðisfirði. Löggjöf um sjókvíeldi og eftirlit með greininni er í molum. Um það erum við öll sammála og ný ríkisstjórn...

Athugasemdir IWF til Matvælastofnunar

Athugasemdir IWF til Matvælastofnunar

Við hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum skiluðum í dag þessum athugasemdum til Matvælastofnunar um tillögu stofnunarinnar að rekstrarleyfi fyrir sjókvíaeldi Kaldvík í Seyðisfirði. Einnig skiluðum við athugasemdum til Umhverfisstofnunar við tillögu stofnunarinnar að...

Umfjöllun um Hvammsvirkjun í Spursmálum

Umfjöllun um Hvammsvirkjun í Spursmálum

Við mælum eindregið með áhorfi á stórmerkilega umfjöllun í Spursmálum um nýfallinn héraðsdóm þar sem framkvæmdaleyfi vegna Hvammsvirkjunar var fellt úr gildi. Snæbjörn Guðmundsson, formaður Náttúrugriða, fer yfir þessa sögu alla og tekur framkvæmdastjóra Samorku í...

„Tökum sénsinn í Seyðisfirði“ – Sigmundur Ernir skrifar

„Tökum sénsinn í Seyðisfirði“ – Sigmundur Ernir skrifar

Sterk rödd á Alþingi gegn sjókvíaeldi, í Seyðisfirði og annarsstaðar. Takk Sigmundur Ernir! Greinin birtist á vef DV: Íslendingum er ekki lagið að læra af reynslunni. Þeir eiga það til að herðast af mistökum sínum, og í stað þess að sýna mildi og æðruleysi, æða þeir...