Við tökum undir með baráttusystkynum okkar í VÁ-Félagi um vernd fjarðar
Þvílík vika að baki. 12.579 undirskriftir komnar í hús fyrir vernd Seyðisfjarðar Við erum djúpt snortin og þökkum mikilvægan stuðning. Minnum á að undirskriftasöfnun heldur áfram og endilega halda áfram að biðja vini og vandamenn að deila og halda áfram að kvitta.
Stór hópur af baráttufólki úr ýmsum samtökum hefur dansað með okkur undanfarnar vikur og án þessa samtakamáttar væri ekki hægt að ná svona flugi. Á morgun hittum við ráðherra í von um að ný ríkisstjórn ætli að hlusta á fólkið í landinu. Það reynir sannarlega fljótt á þau loforð.
Fann þennan fallega texta og lag frá Sigurrós, lagið Fljótavík sem mér finnst eiga svo vel við af því við erum alveg að fara að sigla í land.Sjáum yfir rá
Sjóinn skerum frá
Við siglum mastri trú
Seglum þöndum
Við stýrum að í brú
Við siglum í land
Í stórgrýti og sand
Við vöðum í land
Ófremdarástand
Já, anskotann
Feginn fann ég þar
Þökkum ákaflega
Í skjóli neyðarhúss
Og við sváfum
Stórviðri ofsaði útTakk !