Við hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum skiluðum í dag þessum athugasemdum til Matvælastofnunar um tillögu stofnunarinnar að rekstrarleyfi fyrir sjókvíaeldi Kaldvík í Seyðisfirði.
Einnig skiluðum við athugasemdum til Umhverfisstofnunar við tillögu stofnunarinnar að starfsleyfi fyrir Kaldvik í firðinum.
Í umsögnum okkar förum ekki í saumana á hvernig sjókvíaeldi ógnar Farice sæstrengnum, né að sjókvíarnar eiga að vera á þekktum snjóflóðasvæðum og skapa hættu fyrir sæfarendur. Þessum þáttum verður gerð góð skil í öðrum umsögnum frá frábærum baráttusystkinum okkar.




