Einn af þeim mikilvægu fjarskiptasæstrengjum sem tengja Ísland við umheiminn liggur um Seyðisfjörð: Farice 1 strengurinn.

Samkvæmt fyrstu áformum gerðu skipulagsyfirvöld ráð fyrir botnfestingum fyrir sjókvíar innan helgunarsvæðis Farice 1. Þegar þeim var beint á að það væri með öllu óheimilt virðast þau hafa boðið sjókvíaeldisfyrirtækinu Kaldvík upp á tækifæri til að festa sjókvíarnar niður með öðrum hætti en þekkt er annarsstaðar.

Með öðrum orðum þá er ætlunin að standa í tilraunum með nýja aðferð við botnfestingar á þessum risamannvirkjum rétt við mikilvægustu fjarskiptainnviði landsins.

Það er eiginlega ekki hægt að skálda ruglið sem opinberar stofnanir eru tilbúnar að bjóða uppá til að greiða götu þessa skaðlega iðnaðar.

Í frétt Vísis segir ennfremur:

Gangverk samfélagsins myndi hætta að virka sem skyldi ef mikilvægir sæstrengir til landsins myndu rofna og því er mikilvægt þjóðaröryggismál að tryggja varnir þeirra. Þetta segir yfirmaður netöryggissveitar CERT-IS. Um tvö hundruð sérfræðingar koma saman síðar í þessum mánuði og æfa viðbrögð við rofi á sæstrengjum.

Varnir sæstrengja og annarra innviða hafa einnig verið ofarlega á baugi í tengslum við aukna umræðu um varnir Grænlands og öryggismál á Norðurslóðum. „Það hefur verið að gefa því sérstaklega gaum víða. Þetta hefur komið til borðs þjóðaröryggisráðs og þeirra sem fara með diplómatísk utanríkismál fyrir Ísland og víðar,“ segir Guðmundur.

Fjórir meginstrengir liggja til Ísland en þeir gegna lykilhlutverki fyrir mikilvæga innviði landsins, til að mynda á sviði fjarskipta- og orkumála, fjármála- og heilbrigðismála.

„Það er bara talið að ef þessi þjónusta fer niður þá er gangverk landsins ekki að virka. Þetta er talin það mikilvæg lykilþjónusta fyrir almenning í landinu að það þarf í rauninni bara að tjalda öllu til til þess að tryggja það að þetta haldist virkt og í gangi við meira að segja svona jaðaraðstæður ef að sæstrengirnir allir, einhverra hluta vegna, myndu fara niður,“ segir Guðmundur.

Gildir þá einu hvort að mannlegur ásetningur eða mannleg mistök verði þess valdandi að strengir slitni. Afleiðingarnar yrðu þær sömu hvort sem um árás, bilun eða óhapp væri að ræða. … „Það er algjört þjóðaröryggismál að hafa þetta í lagi,“ segir Guðmundur.