Skrifa undir!
Katrín Oddsdóttir deildi þessari færslu á Facebook:
NÝJAR UPPLÝSINGAR: HÆTTULEGT SJÓKVÍAELDI!
Það er kaldranalegt að skrifa um ofanflóð á Seyðisfirði á sama tíma og hætta er þar á snjóflóðum svo fólk í bænum hefur þurft að yfirgefa heimili sín.
Ég finn mikið til með Seyðfirðingum og sendi þeim baráttukveðjur í þessu ástandi sem hlýtur að kalla fram flóknar tilfinningar og minningar. Návígið við náttúruöflin á þessum einstaka stað er ekkert grín. Þess vegna ætti líka ekki að rasa um ráð fram.
Hér með þessari færslu er birt í fyrsta sinn GLÆNÝTT kort sem við vorum að láta útbúa til að sýna stjórnvöldum í eitt skipti fyrir öll hversu fráleitar fyrirhugaðar eldispælingar í Seyðisfirði eru.
Myndin er af Brimnesfjalli og eldissvæði Kaldvíkur í Selstaðavík. Það er eitt af þremur svæðum sem Kaldvík vill hefja eldi í. Þetta eina svæðið þar sem framkvæmt var einhvers konar ofanflóðamat af þessum þremur en nú liggur fyrir að snjóðflóðahætta er í Sörlastaðasvæðinu sem ekkert mat liggur fyrir á.
Eldinu stendur til að hola ofan í Seyðisfjörð, þvert á vilja 75% íbúa bæjarins. Það er eitt og sér galið, en útfærslan á þessu dæmi er ekki síður fáránleg og þess vegna deili ég þessu korti.
Á kortinu sést hvernig rauðir ofanflóðaferlar Veðurstofunnar fara yfir stóran hluta eldissvæðisins, þar sem Matvælastofnun (MAST) er búið að gera tillögu að rekstrarleyfi fyrir sjókvíaeldi. Umhverfisstofnun hefur einnig gefið út tillögu fyrir starfsleyfi eldisins í Seyðisfirði, og er sú tillaga byggð á gögnum sem eru svo gömul að forsendur eru að mörgu leyti gjörbreyttar.
Það þarf enga mastersgráðu í jarðfræði eða verkfræði til að ímynda sér hvað gerist þegar snjóflóð fellur á þá risavöxnu netapoka sem sjókvíarnar eru. Þó hefur engin stofnun gert tilraun til að meta hættu á umhverfisslysum sem þessari stöðu fylgir. Engin. Skipulagsstofnun sendi minnisblað á Umhverfisráðuneytið þan 18. október 2024 og vakti á þessu athygli. Viðbörgðin virðast ekki hafa verið nein þar. Vonandi tekur nýr umhverfisráðherra, Jóhann Páll Jóhannsson á þessu.
Farice ehf sem gætir fjarskiptastrengsins sem liggur um Seyðisfjörð sendi minnisblað á þáverandi ráðherra fjarskipta (Áslaug Arna) og sagði að það yrði að breyta fjarskiptalögum til að tryggja að sjókvíaeldismannvirki myndu ekki mega stofna öryggi strengsins í hættu. Viðbrögðin voru engin þar heldur. Vonandi tekur nýr ráðherra fjarskipta Logi Einarsson á þessu. Á kortinu sést að sjávarmegin eru ankeri Kaldvíkur á mörkum helgunarsvæðis fjarskiptastrengsins sem veit ekki á gott. Gleymum því ekki að 2/3 hlutar fjarskiptaöryggis Færeyja við umheiminn velta á þessum streng. Er nauðsynlegt að heimila mengandi stóriðju í andstöðu við heimafólk sem auk þess teflir fjarskiptum Færeyinga í tvísýnu?
Það er grafalvarlegt mál að stofnanir ríkisins hafi ekki tekið fullt mark á allri náttúruvá og öryggismálum í Seyðisfirði.
Samkvæmt reglugerð ber MAST skylda til að birta hnit fyrir kvíar í rekstrarleyfi en það gerði stofnunin ekki. Okkur tókst loksins fyrir nokkrum dögum að kreista teikningar af fyrirhuguðu eldi út úr Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS). MAST hafnaði því alfarið að afhenda slík gögn og neitaði að tjá sig um hvort þau hefðu þau undir höndum. Þá hafnaði MAST ítrekað beiðnum okkar um lengri frest í ljósi þess hversu mjög vantaði upp á upplýsingar og lykilgögn í málinu, en slíkt ónýtir andmælarétt okkar þar sem spilin eru ekki á borðinu um hvernig á að framkvæma fyrirhugað eldi. Ekki mjög málefnaleg stjórnsýsla þar á ferð því miður. Vonandi tekur nýr atvinnuvegaráðherra Hanna Katrin Friðriksson á þessu. Umboðsmaður alþingis hefur einnig opnað mál til skoðunar á þessari stjórnsýslu að okkar beiðni.
Kvíarnar sem Kaldvík hefur beðið um byggingarleyfi hjá HMS frá sýna að fyrirtækið freistar þess nú að fá leyfi til framkvæmda sem ekki eru í neinu samræmi við það sem óskað var eftir í umsókn félagsins. Kvíarnar eru t.d. 14 en ekki 12 eins og sótt var um leyfi vegna. Teikningarnar sýna líka hversu mikil hættta er á því, miðað við reynslu fortíðar, að snjóflóð lendi á kvíunum. Þið sjáið að allar ankerisfestingar strandar megin eru inn á svæðinu sem ofanflóðin marka. (Auk þess eru þær reyndar utan skipulags eldissvæði líka skilst mér en það er önnur saga). Þetta þýðir að ef það kemur snjóflóð þarna fer þá á ankerisfestingarnar samkvæmt þessum líkönum Veðurstofunnar. Við þetta bætist að höggbylgja myndast gjarnan þegar snjóflóð heldi á hafi og hafa flóð í Seyðisfirði í gegnum tíðina oft örsakað slíka „ofuröldu“ sem berst alla leið yfir fjörðinn.
Nú er varðskip Landhelgisgæslunnar á leið Austur vegna hættuástandsins. Vill einhver hugsa út í þá stöðu ef flóð hefðu farið á kvíar og mannvirkin blokkerað þar með aðgang varðskipanna að þorpinu í neyðarástandi? Það langar mig að minnsta kosti ekki til að gera.
Kæru vinir, nú er komið nóg! Við verðum að standa öll með meiri hluta Seyðfirðinga og stoppa þetta rugl.
Þegar hafa yfir 11.300 manns skrifað á undirskriftalista gegn fyrirhuguðu eldi og tekið þannig afstöðu með náttúrunni, öryggi, vistkerfum og meiri hluta heimamanna.
Það væri dásamlegt að sjá þessa tölu verða mun hærri á næstunni svo stjórnvöld geri ekki þau mistök að hunsa alvarleika málsins, eins og þau hafa gert hingað til.
Því bið ég öll sem þetta lesa að deila færslunni svo að þekkingin um hversu fráleitt fyrirhugað sjókvíaeldi á Seyðisfirði er, ferðist sem víðast.
Hér má lesa meira um málið: https://www.va-felag.is/