Við mælum eindregið með áhorfi á stórmerkilega umfjöllun í Spursmálum um nýfallinn héraðsdóm þar sem framkvæmdaleyfi vegna Hvammsvirkjunar var fellt úr gildi.

Snæbjörn Guðmundsson, formaður Náttúrugriða, fer yfir þessa sögu alla og tekur framkvæmdastjóra Samorku í eftirminnilega kennslustund.
Meðal þess sem Snæbjörn bendir á er ótrúlegt skeytingarleysi Landsvirkjunar gagnvart villta laxastofninum í Þjórsá.

Stefán Einar Stefánsson stýrir umræðunum með glæsibrag.

Umfjöllunin hefst á 35,30 mínútu þáttarins.