Fréttir
„Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála“ – Jóhann Helgi Stefánsson skrifar
Jóhann Helgi Stefánsson, framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga, leiðréttir í góðri grein alranga söguskýringu atvinnuvegaráðherra um orsakir þess að hið afleita lagareldisfrumvarp varð ekki að lögum á síðasta þingi. „Frumvarpið dagaði ekki uppi vegna þess að...
Jón Kaldal ræðir sögu laxeldis á Austfjörðum á Bylgjunni
Talsmaður okkar hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum, Jón Kaldal, var á Bylgjunni að ræða hrikalega sögu sjókvíaeldis á laxi á Austfjörðum. Marglyttur og þörungablómi eru hluti af lífríki fjarðanna fyrir austan og hafa gert tilveru eldislaxa óbærileg þar um langt...
Reynslan af laxeldi í Mjóafirði boðar ekki gott fyrir Seyðisfjörð
Árið 2006 var sjókvíaeldi á laxi hætt í Mjóafirði. Ástæðan var að eldislaxarnir drápust ítrekað í sjókvíunum af völdum marglyttna og þörungablóma sem eru hvorutveggja hluti af náttúrlegu lífríki Austfjarða. Aðstæður til að hafa eldislax i sjókvíum eru sem sagt mjög...
Áhugaverð umræða um Seyðisfjörð við Græna borðið á Samstöðinni
Benedikta Guðrún Svavarsdóttir frá Vá - félagi um vernd fjarðar og Katrín Oddsdóttir lögmaður settust við Græna borðið á Samstöðinni og ræddu við Pál Ásgeir Ásgeirsson um forsögu þess að fyrirtækið Kaldvík er nú komið með leyfi fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði þvert á...
„Við föllum“ með Bubba Morthens á degi náttúrunnar
Í tilefni af degi náttúrunnar! Hlustið á „Við föllum“ eftir Bubba Morthens. Þetta er sterkasta náttúruverndarlag seinni tíma. Fjögur textabrot: Ég sé ráðherrann reiðan réttlæta sína spillingu. Og við föllum, við föllum með augun blá uns enginn auður blettur er eftir...
Halla Hrund bendir á grundvallaratriði
Grundvallaratriði sem Halla Hrund bendir hér á. Um fiskeldi eru sterkar og ólíkar skoðanir í samfélaginu. En óháð afstöðu til greinarinnar hljótum við að geta verið sammála um eitt: Þegar teknar eru stórar og langvarandi ákvarðanir um nýtingu náttúruauðlinda Íslands...
Mikill laxadauði í kvíum Kaldvíkur í Reyðarfirði
Á þrettán daga tímabili, frá 1. til 13. september, drápust eða þurfti að farga um 374 þúsund eldislöxum í sjókvíum Kaldvíkur í Reyðarfirði firði af völdum marglyttna eða þörunga. Eldislaxinn var kominn í sláturstærð. Myndin sem hér fylgir var tekin í gær og sýnir...
„Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar“ – Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
„Það sem stendur upp úr eftir öll þessi ár snýst ekki einungis um eitt fiskeldisleyfi. Þetta snýst um traust á stjórnsýslunni og lýðræðinu. Hvað þýðir það þegar íbúar lýsa endurtekið yfir andstöðu sinni en sjónarmið þeirra virðast svo hafa engin áhrif á niðurstöðuna?...
„Þrjúþúsund milljón ástæður“ – Jón Kaldal skrifar
Rifjum þessa grein upp í tilefni af þeirri furðu ákvörðun Matvælastofnunar og Umhverfisstofnunar að gefa út leyfi fyrir sjókvíaeldi á laxi í Seyðisfirði. Eltum peningana er sígild regla þegar þarf að setja atburði í samhengi. „Síðla árs 2017 var 45,2 prósent hlutur í...
Þetta snýst ekki bara um Seyðisfjörð: Viðtal við Benediktu um starfsleyfi Kaldvíkur
„Þetta snýst ekki bara um Seyðisfjörð, þetta snýst um að við sem þjóð segjum nei takk, nei takk við þessum vinnubrögðum,“ segir Benedikta Guðrún Svavarsdóttir í viðtali við Vísi. Skoðanakannanir hafa sýnt ár eftir ár að um 65 prósent þjóðarinnar eru andsnúin...
„Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks“ – Rósa Líf Darradóttir skrifar
„Fyrsti innflutningur minks átti sér stað árið 1931 í tíð Framsóknarstjórnar og loðdýrarækt naut opinbers stuðnings,“ skrifar Rósa Líf Darradóttir i fróðlegri grein sem birtist á Vísi. Sjötíu og tveimur árum síðar, árið 2003, gaf Guðni Ágústsson, þáverandi...
„Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú?“ – Magnús Guðmundsson skrifar
Lesið grein Magnúsar 🙏 Magnús skrifar á Facebook: „Ég á ekki eitt einasta andskotans orð. Grein eftir atburði gærdagsins. Það tekur á að lesa greinargerð MAST og rök þeirra fyrir því að þetta sé allt í lagi.😡 Endilega standið með Seyðisfirði, lesið og deilið eins og...











