Á þrettán daga tímabili, frá 1. til 13. september, drápust eða þurfti að farga um 374 þúsund eldislöxum í sjókvíum Kaldvíkur í Reyðarfirði firði af völdum marglyttna eða þörunga. Eldislaxinn var kominn í sláturstærð.

Myndin sem hér fylgir var tekin í gær og sýnir löndun á fiskikörum með dauðum eldislöxum Kaldvíkur. Þrír stórir flutningabílar biðu í röð eftir að flytja þennan sorglega farm burt. Síðastliðinn föstudag var 70 körum landað.

Svona hefur ástandið verið allan september og er enn.

Athugið að marglyttur og þörungar eru hluti af lífríki Austfjarða og hafa alltaf verið. Margar milljónir af eldislöxum í sjókvíum eru það ekki.

Eigendum Kaldvíkur er fullkunnugt um að eldislöxum i sjókvíum stafar bráð hætta af marglyttum og þörungablóma. Þeir kjósa samt að setja eldisdýrin í þessar aðstæður og halda því áfram þrátt fyrir ítrekaðan stórfelldan dauða þeirra.

Þetta er gert með fullu samþykki Matvælastofnunar og að því er virðist meðvituðu sinnuleysi atvinnuvegaráðherra.

Stærsta félag dýralækna sem sinnir heilbrigðisþjónustu í lagareldi á Íslandi sagði í umsögn sinni um lagareldisfrumvarp atvinnuvegaráðherra að það vekti undrun þeirra hversu „lítil áhersla sé sett á velferð og heilbrigði eldisstofns“ í frumvarpinu.

Kaldvík er fyrirtækið sem hyggst setja 10.000 tonna sjókvíaeldi á laxi í Seyðisfjörð þar sem marglyttur og þörungablómi eru þó alþekkt náttúruleg fyrirbrigði.