Árið 2006 var sjókvíaeldi á laxi hætt í Mjóafirði. Ástæðan var að eldislaxarnir drápust ítrekað í sjókvíunum af völdum marglyttna og þörungablóma sem eru hvorutveggja hluti af náttúrlegu lífríki Austfjarða.
Aðstæður til að hafa eldislax i sjókvíum eru sem sagt mjög slæmar fyrir austan.
Atvinnuvegaráðherra var augsýnilega alveg sama um velferð eldislaxanna þegar hún ákvað í nóvember í fyrra að opna Mjóafjörð aftur fyrir mögulegu sjókvíaeldi.
Kaldvík hefur árum saman glímt við hrikalegan dauða i sjókvíum sínum á Austfjörðum. Fyrirtækið hefur allan september verið að dæla dauðum löxum úr kvíum í Reyðarfirði í fiskikör og flytja í land. Ástæðurnar eru marglyttur og þörungablómi.
Sömu aðstæður koma þarna upp aftur og aftur. Stofnanir okkar og ráðherrann styðja þetta sorglega verklag með beinum hætti.
Dótturfélag Samherja og Síldarvinnslunnar í Neskaupstað hefur ákveðið að hætta öllu laxeldi í Mjóafirði, en þar er nú yfir helmingur alls laxeldis í landinu. Vísbendingar eru um að laxeldið sé að taka aðra kollsteypu.
…
Að sögn Guðbergs Rúnarssonar er þetta mikið áfall fyrir þessa síðari tilraun landsmanna til laxeldis, en þegar laxeldinu verður hætt í Mjóafirði verða aðeins fjórar stöðvar eftir, sem framleiða matfisk.
Samherji, sem er aðaleigandi eldisins í Mjóafirði, á einnig verulegan hlut í tveimur af þeim fjórum stöðvum sem eftir verða, en ekki liggur fyrir á þessari stundu hvort eldi verður hætt þar líka. Laxeldi, sem hófst hér á landi á áttunda áratugnum með miklum uppgangi, hrundi nokkrum árum síðar og var að taka við sér aftur, en virðist nú á ný vera á hröðu undanhaldi.