Grundvallaratriði sem Halla Hrund bendir hér á.

Um fiskeldi eru sterkar og ólíkar skoðanir í samfélaginu. En óháð afstöðu til greinarinnar hljótum við að geta verið sammála um eitt:

Þegar teknar eru stórar og langvarandi ákvarðanir um nýtingu náttúruauðlinda Íslands verður stjórnsýslan að vera skotheld.

Það er mikilvægt fyrir fjárfesta sem þurfa fyrirsjáanleika, samfélög er málið varðar og síðast en ekki síst; náttúru og lífríki Íslands sem við berum öll sameiginlega ábyrgð á.

Á Alþingi í dag fjallaði ég um ýmis álitamál er varða erfðablöndun og náttúruvá sem ég er hugsi yfir.

Stofnanir vinna samkvæmt lögum sem gilda hverju sinni en það er ráðherra að tryggja að umgjörð sé eins og best verður á kosið. Sé óvissa er eðlilegt að varúðarsjónarmið ráði för.