„Þetta snýst ekki bara um Seyðisfjörð, þetta snýst um að við sem þjóð segjum nei takk, nei takk við þessum vinnubrögðum,“ segir Benedikta Guðrún Svavarsdóttir í viðtali við Vísi.

Skoðanakannanir hafa sýnt ár eftir ár að um 65 prósent þjóðarinnar eru andsnúin sjókvíeldi á laxi og að innan við 15 prósent styðja þessa mengandi og grimmdarlegu matvælaframleiðslu.

Baráttan um Seyðisfjörð er langt í frá töpuð. Með samtakamætti mun takast að stöðva þessi glórulausu áform.

Viðtalið birtist á Vísi:

„Við erum bara í algjöru áfalli, þetta er fullkomið áfall. En þetta er ekki búið. Þau komust skrefinu lengra í gær á þessum myrka degi, ellefta september en við höfum auðvitað fundið fyrir því að þetta gæti farið að gerast,“ segir Benedikta Guðrún Svavarsdóttir formaður félagsins í samtali við Vísi. Hún segir ljóst að meirihluti íbúa sé á móti áformum Kaldvíkur.

„Þetta snýst núna ekki bara um Seyðisfjörð, þetta snýst um það að það er ekki verið að hlusta á þjóðina. Allir ríkisstjórnarflokkar sögðust vilja vernda Seyðisfjörð í aðdraganda kosninga enda sýndi skoðanakönnun sem við létum gera 2024 það afdráttarlaust að þjóðin vill vernda Seyðisfjörð og eins sjáum við endurtekið mikinn meirihluta þjóðarinnar vera í andstöðu við þennan mengandi iðnað,“ segir Benedikta.

„Það eina sem þarf að gera til að vernda Seyðisfjörð er að fara að lögum og reglum í þessu landi þar sem sjókvíaeldi kemst ekki fyrir í þröngum firðinum. Stofnanir ríkisisins eru að beygja sig og bugta til að þjónka þessu fyrirtæki, sem hefur undanfarna mánuði verið í dauðateygjunum. Við höfum bent á þetta allt, möguleikana til að stöðva þetta og allt fúskið sem er að renna í gegnum stjórnsýsluna, sem svarta skýrslan frá ríkisendurskoðun 2023 sýndi svo bersýnilega. En það er ekki pólitískur vilji til þess ennþá. Ég ætla að trúa því að það geti breyst næstu vikurnar. Við höfum ekki og munum ekki gefa upp þá von. Þessi leyfi eru kæranleg og það mun ekki standa á okkur.“

Benedikta bendir á að á sama tíma sé verið að landa hundrað tonnum af dauðum laxi úr eldiskvíum í Reyðarfirði út af marglyttu þá sé sami marglyttuvandi til staðar í Seyðisfirði. Þá segir hún að félagið hafi ítrekað bent á tæknilegar hindranir þess að koma sjókvíaeldi fyrir í þröngum firði, þannig hafi sem dæmi ekki verið gert ofanflóðamat vegna slysasleppinga í Seyðisfirði af opinberum aðila en Benedikta segir norskt fyrirtæki að nafni Scale AQ sem framleiði sjókvíaeldisbúnað hafa gert matið eftir að því var útvistað til Kaldvíkur.

„Hvað kemur? Ódagsett, óundirritað tveggja blaðsíðna áhættumat frá Scale AQ, hagsmunaaðila í sjókvíaeldisiðnaðinum. Dúkkar þarna upp og ætti að vera öllum ljóst sem það lesa það – að það er ekki fullnægjandi plagg, En það var tekið sem gilt áhættumat vegna slysasleppinga vegna ofanflóða og tók MAST sér hálfan dag í að skoða og stimpla skjalið sem Kaldvík keypti. Þetta snýst ekki bara um Seyðisfjörð, þetta snýst um að við sem þjóð segjum nei takk, nei takk við þessum vinnubrögðum.“

Hvert er þá næsta skref hjá ykkur?

„Þetta verður bara kært. Við erum að rýna núna rekstrarleyfið og við erum með rosalega pappírsslóð í þessu máli eftir að hafa vaktað allar stofnanir, hvert einasta ferli og hvert einasta skref í þessu máli. Þetta stenst ekki skoðun. Það er mjög mikilvægt að starfsemin hefjist aldrei í Seyðisfirði, vegna þess að við sjáum það í öllum tilfellum, að ef þetta fer af stað þarna þá verður mjög erfitt að stöðva þetta. Seyðisfjörður býr yfir einstökum mannauð og hefur alla burði til að vaxa á eigin forsendum án þess að fórna náttúrunni og lífríki hennar, sem við erum fyrst og fremst að setja alla okkar orku í að vernda. Það er með öllu óskiljanlegt að opinberar ríkisstofnanir hendi þessum björgunarhring út til fyrirtækisins á þessum tímapunkti. Tíminn verður að leiða í ljós hvað liggur þar að baki. Á meðan biðjum við þjóðina að styðja við bakið á okkur.“