Benedikta Guðrún Svavarsdóttir frá Vá – félagi um vernd fjarðar og Katrín Oddsdóttir lögmaður settust við Græna borðið á Samstöðinni og ræddu við Pál Ásgeir Ásgeirsson um forsögu þess að fyrirtækið Kaldvík er nú komið með leyfi fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði þvert á vilja 75 prósent íbúa.

Þetta er einstaklega upplýsandi þáttur um hvernig opinberar stofnani, sem eiga að gæta hagsmuna almennings, hafa þróast yfir í stífa sérhagsmunagæslu stórfyrirtækja þar sem leitast er við að greiða götu þeirra með öllum tiltækum ráðum. Allt með blessun ráðherra málaflokksins.