Fréttir

Sjókvíaeldið framleiðir meira af laxalús en löxum

Sjókvíaeldið framleiðir meira af laxalús en löxum

Sjókvíaeldi á laxi ætti með réttu að kalla sjókvíaeldi á laxalús. Iðnaðurinn framleiðir á ári hverju margfalt meira af þessu skæða sníkjudýri en af eldislaxi. Afleiðingarnar fyrir villtan lax, sjóbirting og sjóbleikju eru hrikalegar.

RÚV fjallar um risavaxið sleppislys MOWI í Norður Noregi

RÚV fjallar um risavaxið sleppislys MOWI í Norður Noregi

Þessi iðnaður heldur sínu eyðileggingarstarfi linnulaust áfram. Munum kæru baráttusystkini, að þeir sem halda því fram að hægt sé að stunda sjókvíaeldi í opnum netapokum á laxi í frið og spekt við náttúru og lífríki eru að ljúga. Og þeir vita það sjálfir. RÚV fjallar...

„Á­róður í boði SFS“ – Elvar Friðriksson skrifar

„Á­róður í boði SFS“ – Elvar Friðriksson skrifar

Elvar Friðriksson, framkvæmdastjóri Verndarsjóðs villtra laxastofna (NASF), veltir fyrir sér í greininni sem hér fylgir á hvaða vegferð SFS er eiginlega í heftúðugri hagsmunagæslu sinni fyrir sjókvíaeldisfyrirtækin sem starfa hér við land, en þau eru að meirihluta í...

Sýktur fiskur endar á borðum neytenda

Sýktur fiskur endar á borðum neytenda

Svona útlítandi eldislax, með áverka eftir laxalús og vetrarsár, senda sjókvíeldisfyrirtækin á neytendamarkað. Í frétt norsku sjónvarpsstöðvarinnar TV2 kemur fram að eldislaxar í sjókvíum hafa í flestum tilfellum ítrekað glímt við langvarandi alvarleg veikindi áður en...

„Svar til lög­manns SFS“ – Magnús Guðmundsson skrifar

„Svar til lög­manns SFS“ – Magnús Guðmundsson skrifar

Magnús Guðmundsson, félagsmaður í VÁ-félagi um vernd fjarðar, snýtir lögmanni SFS snyrtilega í þessari grein sem hér fylgir. Lögmaðurinn hafði verið með dólg við Sigmund Erni Rúnarsson í tilefni af grein sem Alþingismaðurinn birti á dögunum en í henni lýsti hann sig...