Þessi iðnaður heldur sínu eyðileggingarstarfi linnulaust áfram.

Munum kæru baráttusystkini, að þeir sem halda því fram að hægt sé að stunda sjókvíaeldi í opnum netapokum á laxi í frið og spekt við náttúru og lífríki eru að ljúga. Og þeir vita það sjálfir.

RÚV fjallar slysið:

Norski laxeldisrisinn Mowi hefur boðið fundarlaun fyrir 27 þúsund eldislaxa sem sluppu úr keri fyrirtækisins í Tromsfylki í norðurhluta landsins.

Mowi er stærsti framleiðandi á laxi í heimi og hefur boðið 500 norskar krónur fyrir hvern lax eða um 6300 íslenskar krónur. Meðalþyngd hvers fisks er um 5,5 kíló. …

Fiskistofa hefur rýmkað heimildir Mowi til endurveiða vegna umfangs ástandsins sem gæti valdið óæskilegri blöndun á milli villtra laxa og eldislaxa, aukið sýkingarhættu á laxalús og örtröð á hrygningarsvæðum. Almennt hafa fiskeldisfyrirtæki einungis heimild til endurveiða í innan við 500 metra fjarlægð frá starfstöðvum sínum.

Laxeldi hefur verið umdeilt í Noregi líkt og víðar og hafa aðgerðarsinnar gegn sjókvíaeldi lýst atvikinu sem „stórslysi.“

Umhverfisráðherra Noregs, Anders Bjelland, viðurkenndi í síðasta mánuði að villti Atlantshafslaxastofninn væri í útrýmingarhættu. Útilokaði hann engu að síður bann við sjókvíaeldi og kvaðst leita leiða til þess að ná óæskilegri blöndun á milli villtra laxa og eldislaxa niður á „viðunandi stig.“