Í tilefni þess að ástand þjóðvegakerfisins er hvergi verra en á Vesturlandi er rétt að rifja upp að svæðisstjóri Vegagerðarinnar þar gerði að umtalsefni í fyrra að þungaflutningar með sjókvíaeldislax væri ástæðu fyrir afleitu ástandi á svæðinu.

Útskýrði hann að einn hlaðinn flutningabíll slíti vegum á við 10.000 fólksbíla. Þessir bílar eyðileggja vegi sem sagt í veldisvexti miðað við þyngd. Í fréttum RÚV í fyrra kom líka fram að fyrir 2022 þurfti að endurbyggja fimm kílómetra vegkafla um Mikladal, milli Patreksfjarðar og Tálknafjarðar, eftir að vegurinn hrundi. Akkúrat á þessum kafla eru gríðarlegir þungaflutningar með sjókvíaeldislax. Sagði svæðisstjórinn að endurbygging vegarins um Mikladal hefði tekið stóran hluta af fjármagni til styrkingarverkefna á Vesturlandi og Vestfjörðum á síðustu tveimur árum.

Þessu til viðbótar hefur kostnaður við holufyllingar á Vestfjörðum fimmfaldast á síðustu árum, en á því tímabili hefur framleiðsla á sjókvíaeldislaxi þrettánfaldast á svæðinu.

Í fyrra óku að meðaltali hvern einasta dag 3,8 fullfermdir þungaflutningabílar með sjókvíaeldislax um vegi Vestfjarða. Það er á við umferð 13,9 milljón fólksbíla á ári. Auðvitað eyðileggur slík umferð þjóðvegakerfið.

Það er fásinna að taka ekki með í dæmið við kostnað þjóðfélagsins af sjókvíaeldinu þær gríðarlegu skemmdir sem þungaflutningar einkafyrirtækja valda á vegum fyrir vestan. Að byggja vegi fyrir þungaflutninga af þessu umfangi kostar gríðarlegar upphæðir. Örugglega mun hærri en takmarkað auðlindagjald sem sjókvíaeldisfyrirtækin greiða nú í ríkissjóð.

Við minnum líka á að þangað hefur aðeins eitt sjókvíeldisfyrirtæki greitt tekjuskatt (og það aðeins einu sinni) frá árinu 2007 þegar elsta fyrirtækið í þessum iðnaði var stofnað.