Fjölmargir annmarkar eru á umsókn Kaldvíkur um leyfi fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði einsog kemur fram í meðfylgjandi frétt RÚV.
Þessu til viðbótar er Hafrannsóknastofnun með í vinnslu nýtt áhættumat erfðablöndunar eldislax við villta laxastofna.
Óháðir sérfræðingar frá ýmsum löndum eru nú að rýna aðferðafræði stofnunarinnar. Nýja matið mun væntanlega koma út í mars eða apríl.
Miklar líkur eru á að framleiðsluþak eldislax í sjókvíum verði lækkað verulega sem myndi breyta enn frekar forsendum fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði og mögulega binda endi á þau áform.
Enn hefur ekki verið metið hvort snjóflóð gætu hleypt eldislaxi úr kvíum í Seyðisfirði ef flóð félli í Selsstaðavík þar sem Kaldvík áformar laxeldissvæði. Veðurstofan hefur áréttað við Matvælastofnun að hættumat hafi aðeins snúið að mögulegum mannskaða en ekki umhverfisslysi.
…
Veðurstofan vann hættumat fyrir víkina þar sem fram kemur að sjókvíarnar yrðu utan b-hættusvæðis og standist því hættumat fyrir atvinnusvæði. Miðað við skráð flóð mætti búast við snjóflóðum sem næðu niður að sjó og nálegt sjókvíum í Selsstaðavík einu sinni eða tvisvar á öld, jafnvel oftar því þetta sé fáfarið svæði og líklega eitthvað um óskráð flóð. Samkvæmt líkönum ætti að draga verulega úr úthlaupi snjóflóða þegar komið er frá ströndinni og því þyrfti mjög stór flóð til að ná út að sjókvíunum. Stór snjóflóð úr tveimur mest afgerandi upptakasvæðum ættu að fara fram hjá sjókvíunum miðað við líkön.
Meiri hætta er leyfð á atvinnusvæðum því þar sefur ekki fólk og treyst er á rýmingu. Lax í eldiskvíum yrði hins vegar ekki fluttur svo glatt í burtu í snjóflóðahættu og nú hefur Veðurstofan bent Matvælastofnun á að í hættumatinu hafi ekki verið tekin nein afstaða til þess hvort flóð gæti falið á kvíar, fóðurpramma eða akkerisfestingar og mögulega valdið slysasleppingu.
…Húsnæðis- og mannvirkjastofnun veitir byggingarleyfi á fjörðum utan netlaga og skoðar ofanflóðamálin í Seyðisfirði og hvort kvíar og akkerisfestingar yrðu nógu langt frá ströndinni. Lendi búnaður innan svokallaðra netlaga heyra áformin undir skipulag sveitarfélags.
Samkvæmt upplýsingum fréttastofu leikur vafi á um hvar netalög liggja í Seyðisfirði og hvort þau eru rétt skráð í strandsvæðaskipulagi. Netalög ná 115 metra út frá stórstraumsfjöruborði en aldrei hefur verið mælt hvar það liggur. Í strandsvæðaskipulagi var miðað við strandlínu í kortagrunni Landmælinga. HMS telur að nú verði að mæla nákvæmlega hvar stórstraumsfjöruborð liggur. …