Aldrei hafa fleiri eldislaxar drepist í sjókvíum við Ísland, eða verið fargað því þeir áttu sér enga lífsvon, en í fyrra.
Desember var langversti mánuðurinn á skelfilegu ári. Alls lifðu ekki af 955.041 eldisdýr þær aðstæður sem þeim var boðið upp á í sjókvíunum. Næstversti mánuðurinn var nóvember þegar 655.895 eldislaxar drápust eða var fargað.
Um 4,8 milljónir eldislaxa drápust í fyrra og er það rúmlega 200.000 fleiri en martraðarárið 2023.
Þetta er álíka og 78-faldur íslenski villti laxastofninn hefði drepist.
Dauðinn hefur vaxið ár frá ár frá því sjókvíaeldi hófst við landið. Það er sama þróun og í öðrum löndum þar sem þessi grimmdarlega og mengandi matvælaframleiðsla er stunduð.
Rúmlega 22 prósent eldislaxanna sem sjókvíaeldisfyrirtækin settu í kvíar 2024 drápust vegna vetrarsára, lúsaáverka eða sjúkdóma.
Fjölmennustu samtök norskra líffræðinga og sérfræðinga á sviði fisksjúkdóma kölluðu eftir því í fyrra að norsk stjórnvöld myndu skikka sjókvíeldisfyrirtækin til að koma afföllum undir fimm prósent á ári með breyttum reglum.
Fyrirtækin mega ekki heyra minnst á strangari reglu í Noregi. Sama gildir hér þar sem hagsmunagæslusamök þeirra, SFS, berjast með kjafti og klóm gegn hertri dýravelferðarlöggjöf í sjókvíeldi.
Við hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum höfum ítrekað kallað eftir því að íslensk stjórnvöld skerist í leikinn og komi í veg fyrir að sjókvíeldisfyrirtækin komist upp með að fara svona með eldislaxana. Ný ríkisstjórn hlýtur að grípa í taumana.
Fagráð Matvælastofnunar um velferð dýra ályktaði svona í fyrravor:
„Fagráð um velferð dýra óskar eftir því að fram fari á vegum MAST og Matvælaráðuneytisins mun ítarlegri umræða þegar í stað um hvers konar afföll séu í raun ásættanleg í sjókvíaeldi.“
Enn hefur hvorki Matvælaráðuneytið né Matvælastofnun svarað þessari ósk fagráðsins.
Vísir.is fjallar um laxadauðann:
Um 4,8 milljónir laxa drápust í sjókvíaeldi í fjörðum landsins í fyrra samkvæmt tölum Matvælastofnunar. Hún rannsakar enn dauða meira en milljónar laxa hjá fiskeldisfyrirtæki á Austfjörðum í lok síðasta árs.
Yfir fjórar og hálf milljón laxa hefur drepist í sjókvíaeldi á hverju ári undanfarin þrjú ár. Árið 2022 drápust 4.755.000 laxar eða þeim var fargað í sjókvíaeldi í fjörðum landsins. Meginorsökin þá var svonefnd ISA-veira í fiskeldi á Austfjörðum. Árið eftir drápust fjórar og hálf milljónir laxa eða þeim var fargað, nú aðallega vegna lúsafaraldurs á Vestfjörðum.
Fiskum í sjókvíum hefur fjölgað nokkuð á þessu tímabili. Árið 2022 voru að meðaltali sextán milljónir fiska í sjó á mánuði en þeir voru orðnir tuttugu milljónir árið 2023. Í fyrra voru 21,5 milljónir fiska í sjó að meðaltali á mánuði. …