Fréttir

Íslensk stjórnvöld svara ekki upplýsingabeiðni ESA, eftirlitsstofnunar EFTA

ESA, eftirlitsstofnun EFTA , sendi erindi til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, sem fulltrúa íslenskra stjórnvalda, þann 30. janúar, með beiðni um upplýsingar um útgáfu leyfa fyrir sjókvíaeldi án þess að flokkun á ástandi vatnshlota lægi fyrir áður. Það gengur gengur vatnatilskipun ESB sem innleidd var hér á landi í lögum um stjórn vatnamála.

Frestur til að svara beiðninni var gefinn til 2. mars og síðar framlengdur til 17. mars að ósk íslenskra stjórnvalda. Þetta er tíminn sem er liðinn frá því fresturinn rann út:

00
:
00
:
00
:
00
Sorgleg ákvörðun: Kaldvík fær starfsleyfi

Sorgleg ákvörðun: Kaldvík fær starfsleyfi

Jæja. Þá er það komið. Kaldvík fékk í dag starfs- og rekstrarleyfi fyrir 10.000 tonna sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Eftir sex ár af þessu. Eftir að yfirgnæfandi meirihluti Seyðfirðinga hefur sagt NEI. Eftir allar athugasemdirnar, mótsagnirnar, gögnin sem standast ekki...

Norskir miðlar fjalla um laxadauða í kvíum Kaldvíkur

Norskir miðlar fjalla um laxadauða í kvíum Kaldvíkur

Norskir fjölmiðlar birta nú hver á fætur öðrum fréttir af dauða eldislaxa í sjókvíum Kaldvíkur Á Austfjörðum vegna marglyttna og þörungarblóma og neyðarslátrunar sem fyrirtækið hefur þurft að grípa til svo enn fleiri eldislaxar drepist ekki. Fréttirnar birtast í...

Laxadauði Kaldvíkur margfaldur á við landsmeðaltalið

Laxadauði Kaldvíkur margfaldur á við landsmeðaltalið

Dauði eldislaxa í sjókvíum Kaldvíkur í Berufirði og Fáskrúðsfirði var þrisvar til fjórum sinnum hærri en landsmeðaltalið í júlí. Þetta má sjá í nýbirtum tölum á Mælaborði fiskeldis Matvælastofnunar. Gríðarlegur dauði er viðvarandi margra ára vandamál hjá Kaldvík. Um...