Baráttufólk fyrir vernd náttúrunnar og villtra laxastofna í Noregi hefur sent erindi til ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, þar sem bent er á að norsk stjórnvöld hafa um árabil farið markvisst á svig við vatnatilskipun Evrópusambandsins við útgáfu leyfa fyrir vatnsaflsvirkjanir og sjókvíaeldi. Rétt eins og hér á landi var vatnatilskipun ESB leidd í norsk lög um stjórn vatnamála fyrir meira en áratug.

Lesendur þessarar síðu eru kunnugir efninu. Hér hafa verið fluttar fjölmargar fréttir um frumkvæðisathugun ESA á því hvernig staðið hefur verið að útgáfu leyfa fyrir sjókvíaeldi á laxi við Ísland en þau hafa öll verið veitt án þess að mat hafi verið gert áður á ástandi vatnshlota. Ber þó að framkvæma slíkt mat samkvæmt lögum um stjórn vatnamála sem byggð eru á vatnatilskipun Evrópusambandsins.

Athugun ESA hófst í janúar á þessu ári með ósk um svar frá stjórnvöldum eigi síðar en 2. mars. Erindið var sent umhverfisráðuneytinu sem svaraði loks þegar komið var fram í miðjan maí.

Mat séfræðinga okkar hjá IWF er að málinu sé langt í frá lokið þar með. Augljóst sé að að leyfi fyrir sjókvíeldi á laxi í opnum netapokum hafi verið gefin út í trássi við lög um stjórn vatnamála og beri að fella úr gildi.

Við hjá IFW erum ásamt AegisWatch, umhverfissjóði Bjarkar Guðmundsdóttur, bakhjarlar dómsmáls sem hófst í fyrra og er enn í gangi byggt á þeim sjónarmiðum.

Í vor felldi Eystri landsréttur Danmerkur (Østre Landsret) úr gildi leyfi fyrir sjókvíaeldi í Eystrasalti við Láland þar sem „lyfjaleifar, mikið magn af saur úr fiski og kemísk efni sem notuð eru til að meðhöndla netapokana“ berast í hafið.

Staðfesti dómstóllinn þar með að ákvörðun umhverfis- og matvælakærunefndar Danmerkur um að afturkalla starfsleyfi sjókvíaeldis við Láland, hafi verið réttmæt.

Kærunefndin taldi að umhverfiskröfurnar sem leyfið byggði á væru ekki nægilega strangar og krafðist nýrrar og ítarlegrar rannsóknar á áhrifum starfseminnar á búsvæði í hafinu.

Við hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum teljum að sama gildi hér við land. Norsk skoðanasystkini okkar eru á sama máli og ESA telur að útgáfu þessara leyfa þarfnist rannsóknar.

Sjá frétt NRK.