Samanlagt tap stóru sjókvíaeldisfyrirtækjanna þriggja, Arnarlax, Arctic Fish og Kaldvíkur, fyrstu sex mánuði ársins nemur 69,5 milljónum evra, sem er á við 10,4 milljarða íslenskra króna. Þetta má sjá í uppgjörum fyrirtækjanna fyrir annan ársfjórðung 2026.
Öll þrjú fyrirtækin hafa verið rekin með látlausu tapi ár eftir ár. Verstur er reksturinn hjá Kaldvík fyrstu sex mánuði ársins.
- Kaldvík: Tap upp á 42,1 milljón evra (6,3 milljarðar króna).
- Arctic Fish: Tap upp á 18,3 milljón evra (2,7 milljarðar króna).
- Arnarlax: Tap upp á 9,1 milljón evra (1,4 milljarðar króna).
Erlendar bankastofnanir eru stærstu lánveitendur allra fyrirtækjanna sem á 18 mánaða tímabili, 2025 og fyrstu sex mánuði 2026, hafa greitt að lágmarki 157 milljónir evra (um 23,5 milljarða króna) í vexti og afborganir af lánum.
Gjaldeyrir streymir sem sagt úr landi vegna þessa reksturs sem hvílir þar að auki að stóru leyti á kaupum á innfluttu fóðri, vinnuafli og búnaði.
Við þennan gríðarlega taprekstur bætist ótilgreint tap fjórða sjókvíaeldisfyrirtækisns, Háafells ehf. sem gefur ekki út ársfjórðungsleg uppgjör þar sem félagið er einkahlutafélag en ekki almenningshlutafélag á hlutabréfamarkaði ólíkt hinum.
Ekkert þessara fyrirtækja mun greiða tekjuskatt á Íslandi, frekar en fyrri ár.