Rúmlega 745.000 laxar drápust í íslensku fiskeldi í júní. Það er óvenjumikið og mestu afföll sem hafa orðið í einum mánuði síðan í desember 2024.
Þetta kemur fram í meðfylgjandi frétt RÚV.
Fyrstu sex mánuði ársins hafa um 2,8 milljón eldislaxa drepist i sjókvíum við Ísland. Það er álíka mikið og á sama tímabili í fyrra en 2025 var enn eitt martraðarár fyrir sjólvíaeldisfyrirtækin og eldislaxanna þeirra. Aldrei áður höfðu jafn margir laxar drepist i kvíunum á einu ári. Þetta ár stefnir í sömu hörmungar.
Til að setja fjöldann sem drapst í kvíunum frá janúar til júní á þessu ári i samhengi þá telur heildarstofn villta íslenska laxastofnsins um 60.000 fiska, eða 2,1 prósent af þeim eldislöxum sem drápust í sjókvíunum.
Ástandið hefur verið verst hjá Kaldvík, sem er eina sjókvíeldisfyrirtækið á Austurlandi. Fyrirtækið er með um 30 prósent af heildarfjölda eldislaxa í kvíum við landið en um 50 prósent af fjölda dauðra fiska.
MAST sektaði Kaldvík í fyrra fyrir brot á dýravelferðarlögum og vísaði öðru stærra máli til lögreglu. Þeirri rannsókn enn ólokið.
Í maí 2024 bókaði Fagráð Matvælastofnunar um dýravelferð með þessum hætti:
„Fagráðið varar við að sá hugsunarháttur nái að skjóta rótum á Íslandi að velferð fiska skipti takmörkuðu máli þegar kemur að lagareldi.“
Þetta er þó það sem hefur því miður gerst. Kemur það meðal annars fram í viðhorfi fulltrúa Matvælastofnunar (MAS), sem rætt er við í frétt RÚV, og lagareldisfrumvarpi atvinnuvegaráðherra sem góðu heilli varð ekki að lögum í vor.
Dapurlegt er að hvorki stjórnendur MAST né ráðherra virðast hafa nokkurn áhuga á að taka mark á ítrekuðum áskorunum Fagráðsins um að ræða alvarlegan dýravelferðarvanda í sjókvíeldi við Ísland.
Í rekstraráætlunum sjókvíaeldisfyrtækja er gert ráð fyrir um 20 prósent „afföllum“ á ári, eða um 36 prósent í hverri eldislotu. Afföllin hafa verið langt yfir þeirri tölu undanfarin ár í sjókvíum við Ísland.
Löngu er orðið útséð um að fyrirtækin taki af sjálfsdáðum til í sínum rekstri. Sífellt fleiri eldislaxar drepast ár frá ári. Lög og umgjörð þessa grimmdarlega iðnaðar eru enda klæðskerasniðin að hagsmunum fyrirtækjanna en ekki velferð eldisdýranna.
Í frétt RÚV segir meðal annars:
Rúmlega 745.000 laxar drápust í íslensku fiskeldi í júní. Það er óvenjumikið og mestu afföll sem hafa orðið í einum mánuði síðan í desember 2024.
Karl Steinar Óskarsson, deildarstjóri fiskeldisdeildar hjá Matvælastofnun, segir svona mikil afföll í einum mánuði óvenjuleg. „Það er toppur í júní á þessu ári þar sem að yfir 740.000 fiskar drápust, það er um 3% miðað við þá fiska sem eru í sjó.“
Karl segir MAST hafa fengið skýringar frá þeim tveimur fiskeldisfyrirtækjum þar sem afföllin hafi verið mest.
„Það er þarna útsetning á eldissvæði á Austfjörðum þar sem hluti seiða sem var settur út, þau voru ekki orðin að fullu sjógönguhæf. Í hinu tilfellinu sem var á Vestfjörðum, þar var um að ræða að við dælingu á seiðum út í brunnbát frá seiðastöð þá hafa einhver af þeim seiðum orðið fyrir hnjaski og seiði drápust þá við útsetningu. Þá sem sagt fyrst uppgötvast þetta og þá er farið strax í að laga það.“
Það séu þessi tvö atvik sem skýri mikil afföll í mánuðinum.
„En ég get nefnt það að í júlí þá eru 1% afföll á móti þessum 3% í júní og þau voru rétt rúmlega 1% í maí,“ segir Karl Steinar.
En þessi afföll í júní, er þetta eitthvað sem þarfnast frekari skoðunar af hálfu MAST?
„Við fáum náttúrulega gögn alltaf reglulega, við bregðumst við í hvert einasta skipti, köllum eftir skýringum og hvaða leiðir fyrirtækin ætla að fara til að draga úr þessu. En það er ekkert saknæmt sem hefur átt sér stað þarna, það er ekki þannig.“