Jæja. Þá er það komið.

Kaldvík fékk í dag starfs- og rekstrarleyfi fyrir 10.000 tonna sjókvíaeldi í Seyðisfirði.

Eftir sex ár af þessu. Eftir að yfirgnæfandi meirihluti Seyðfirðinga hefur sagt NEI. Eftir allar athugasemdirnar, mótsagnirnar, gögnin sem standast ekki skoðun og fúskið sem við höfum þurft að elta og benda á aftur og aftur.

Samt skal drösla þessu í gegn.

Nú reynir á ríkisstjórnina sem ætlaði að gera hlutina öðruvísi. Sýnið kjark. Kallið eftir óháðri stjórnsýsluúttekt á þessu fúski. Og gerið það sem þið sögðust ætla að gera, vinnið fyrir almenning en ekki valdaöflin.

Við Seyðfirðingar erum meira en tilbúin í atvinnuuppbyggingu, nýsköpun og verðmætasköpun. En við viljum gera það á okkar eigin forsendum. Við þurfum ekki að fórna firðinum okkar til að eiga framtíð.

Einhverjir hlutabréfaeigendur eru eflaust glaðir í dag og kannski segir það bara sitt um fyrir hverja þetta kerfi virðist vera að vinna. Með þessari ákvörðun er staða fyrirtækisins orðin allt önnur og verðmætari, á meðan samfélagið sem hefur barist gegn þessum áformum í sex ár situr eftir og þarf enn eina ferðina að verja fjörðinn sinn.

En við ætlum ekkert að fara neitt.

Það verður aldrei sjókvíaeldi í Seyðisfirði.

Við drógum línuna. Hún stendur enn. ❤️

Deilið þessu vídjói með okkur í dag og sýnið Seyðisfirði og vernd fjarðarins stuðning.

Við látum ekki vaða svona yfir okkur aftur og aftur.

ÞAÐ ER NÓG TIL FRAMMI!