Matvælastofnun (MAST) og Umhverfisstofnun gáfu í dag út leyfi fyrir 10 þúsund tonna sjókvíaeldi á laxi í Seyðisfirði þrátt fyrir „fordæmalausa andstöðu“ íbúa bæjarins, eins og það er orðað í umsögn Skipulagsstofnunar.
Fjölmargt er að athuga við forsendur leyfisveitinganna á grundvelli aðstæðna í Seyðisfirði.
Burtséð frá þeirri gagnrýni er vægast sagt einkennilegt að stofnanirnar, sem eiga að gæta hagsmuna almennings, telji Kaldvík til þess bært yfirhöfuð að fá leyfi fyrir aukinni starfsemi.
Annars vegar vegna meðferðar fyrirtækisins á eldisdýrum sínum og hins vegna afar slæmrar fjárhagsstöðu þess.
MAST sektaði Kaldvík í fyrra fyrir brot á dýravelferðarlögum vegna illrar meðferðar á eldislöxunum og vísaði öðru máli til lögreglu vegna gruns um mun umfangsmeiri brota á sömu löggjöf.
Kaldvík hefur frá upphafi árs 2025 til loka annars ársfjórðungs 2026 tapað samtals tólf þúsund og tvö hundruð milljónum króna. Það gerir 22,3 milljónir hvern einasta dag á þessu átján mánaða tímabili. Kom þetta ofan í tap öll önnur rekstrarár fyrirtækisins.
Með útgáfu leyfa fyrir 10.000 tonna eldi í Seyðisfirði fékk Kaldvík afhentar framleiðsluheimildir frá íslenska ríkinu sem metnar eru á 36 milljarða í Noregi. Norsk yfirvöld tilkynntu í gær að gefin yrðu út ný leyfi upp á 8.200 tonn við vesturströnd landsins gegn 25.000 evra föstu gjaldi á tonnið til fyrirtækja á svæðinu.
Gengi Kaldvíkur er nú innan við 20 prósent af því sem það var um áramótin 2024/2025.
Norska kauphöllin setti Kaldvík á sérstakan válista í byrjun júní á þessu ári þar sem fyrirtækið hafði margsinnis svikist um að birta ársreikning sinn eins og því bar að gera samkvæmt upplýsingaskyldu fyrirtækja sem skráð eru í kauphöllinni.
Í kjölfar þess að fyrirtækið birti loks ársreikninginn voru hlutabréf Kaldvíkur athugunarmerkt af Nasdaq þar sem í ársreikningnum koma fram athugasemdir um að aðstæður séu fyrir hendi sem gætu skapað vafa um áframhaldandi rekstrarhæfi félagsins (e. going concern).
Útgáfa þessara leyfa á þessum tímapunkti lítur út eins og björgunarhringur hins opinbera til sökkvandi fyrirtækis sem hefur farið skelfilega með eldisdýr sín og fjármuni hluthafa.
Myndin sýnir sjálfdauða eldislaxa úr sjókvíum fyrir austan. Banamein þeirra voru vetrarsár. Í byrjun vikunnar var sagt frá því að marglyttur og þörungar væru að valda miklum afföllum í sjókvíum Kaldvíkur. Enn er ekki útséð með hversu margir eldislaxar hafa drepist af þeim sökum.
Samkvæmt heimildarmanni okkar fyrir austan landaði Kaldvík 70 körum af dauðum eldislaxi bara í gær.
Verðmæti leyfa í Noregi, Skv umfjöllun Salmon Business: „…offered to existing licence holders at a fixed price of NOK 270,000 (€25,000) per tonne.“