Dauði eldislaxa í sjókvíum Kaldvíkur í Berufirði og Fáskrúðsfirði var þrisvar til fjórum sinnum hærri en landsmeðaltalið í júlí. Þetta má sjá í nýbirtum tölum á Mælaborði fiskeldis Matvælastofnunar.
Gríðarlegur dauði er viðvarandi margra ára vandamál hjá Kaldvík. Um 18 prósent þeirra eldislaxa sem fyrirtækið er með í sjókvíum á Austfjörðum hefur drepist á tímabilinu janúar til júlí og enn eru eftir fimm mánuðir á árinu.
Í fyrra drápust um 23 prósent eldislaxa í kvíum sjókvíaeldisfyrirtækjanna. Er það miklu hærra hlutfall en í sjókvíum við Noregi, þar sem ástandið þykir þó óviðunandi.
Kaldvík hefur verið sektað fyrir brot á dýravelferðarlögum og lögreglurannsókn stendur nú yfir vegna brota á sömu löggjöf.
Laxalús hefur ekki verið vandmál á Austjörðum en slæm meðferð, önnur skæð sníkjudýr, marglyttur, þörungablómi, blóðþorri og vetrarsár hefur gert tilveru eldislaxanna hrikalega fyrir austan.
Myndin sýnir vetrarsár á eldislaxi Kaldvíkur.