Tveir Norðmenn hafa verið ákærðir fyrir að selja 550 tonn af sjálfdauðum og óhæfum eldislaxi til manneldis á neytendamarkað í Noregi og öðrum löndum. Rannsókn norsku efnahagsbrotalögreglunnar Ökokrim hófst 2024 en ákært er fyrir brotastarfsemi á árunum 2018 til 2023. Talið er að ágóði af brotunum hafi numið 28 milljónum norskra króna, sem er ígildi um 375 milljóna íslenskra króna.
Við fjölluðum ítarlega um þetta mál þegar fréttaflutningur hófst um það í Noregi á sínum tíma. „Á pappír var fiskurinn í góðu lagi, í raun var ólöglegt að selja hann og hættulegt að borða,“ sagði meðal annars í fréttaskýringu NRK, norska ríkisfjölmiðilsins.
Europol, löggæslustofnun Evrópusambandsins, hefur vakið athygli á að skipulagðir glæpir gegn umhverfinu geta verið jafn ábatasamir og viðskipti með fíkniefni. Síðastliðið haust tók Ökokrim þann þátt af brotastarfsemi í fyrsta skipti inn í árlega áhættumatsskýrslu sína og benti sérstaklega á brotastarfsemi fyrirtækja sem stunda sjókvíaeldi á laxi við Noreg.
Haustið 2023 þegar sjókvíaeldisfyrirtækin Arctic Fish og Arnarlax misstu gjörsamlega tökin á lúsafaraldri á eldissvæðum sínum á Vestfjörðum birtist frétt á vef Vísis þar sem haft var eftir Daníel Jakobssyni, þá millistjórnanda hjá Arctic Fish, að á landinu væru matsmenn að meta lúsasærðu eldislaxana áður en þeim var slátrað.
Fréttinni var breytt sama dag og hún birtist og ummælin um matsmennina tekin út. Við hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum fengum staðfest að að það hefði verið gert að ósk Daníels. Hann virtist hafa talað af sér.
Þegar upp var staðið haustið 2023 höfðu Arnarlax og Arctic Fish þurft að slátra og farga um 1,7 milljón eldislöxum vegna þess hversu ömurlega illa særðir þeir voru af völdum laxalúsar. Það er ígildi 28-falds fjölda íslenska villta laxastofnsins.
Aldrei hefur fengist á hreint hvort eitthvað af þessum eldislöxum hafi endað á neytendamarkaði að lokinni úttekt matsmanna Daníels, sem var ráðinn forstjóri Arctic Fish vorið 2025.
Í frétt NRK segir meðal annars.
Totalt skal dei to mennene som no er tiltalte, ha selt over 550 tonn dårleg eller umerka oppdrettslaks til kundar i inn- og utland med ein verdi av over 23 millionar.
Salet skal ha skjedd frå 2018 til 2023, og dei to var då dagleg leiar og salssjef/marknadsdirektør i eit firma på Nordmøre.
Av tiltalen går det også fram at deler av fisken skal ha vore i kontakt med golv og ureine soner, og likevel blitt selt som menneskemat.
…Økokrim meiner at dei ulovlege handlingane førte til eit urettkome utbytte for selskapet på 28 millionar kroner.
Økokrim har derfor gitt selskapet eit inndragingsførelegg for det ulovlege utbyttet. Førelegget er ikkje vedteke.
…
Det er Økokrim som har tatt ut tiltalen, etter at dei starta etterforsking hausten 2024.
Då hadde Mattilsynet fånyttes forsøkt å spore opp kvar fisken hadde blitt av, men måtte slå fast at den truleg hadde hamna på matfatet til uvitande kundar.
…
I same periode er dei tiltalt for å ha selt fleire hundre tonn oppdrettslaks med sår og misdanningar til ein tysk kunde for over 24 millionar.
..I tillegg er dei to mennene tiltalte for grov økonomisk utruskap mot selskapet dei jobba for.
Dette fordi dei skal ha utsett selskapet for betydeleg risiko for økonomiske tap i form av negative sanksjonar og/eller for tap av omdøme og tillit i marknaden, står det i tiltalen.
– Ved å selje fisk som skulle vore destruert, meiner Økokrim at dei tiltalte har skada omdømet og interessene til selskapet. Eksport av produksjonsfisk til utlandet kan også skade omdømet til norsk laks, seier Johansen.