Fréttir
Íslensk stjórnvöld svara ekki upplýsingabeiðni ESA, eftirlitsstofnunar EFTA
ESA, eftirlitsstofnun EFTA , sendi erindi til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, sem fulltrúa íslenskra stjórnvalda, þann 30. janúar, með beiðni um upplýsingar um útgáfu leyfa fyrir sjókvíaeldi án þess að flokkun á ástandi vatnshlota lægi fyrir áður. Það gengur gengur vatnatilskipun ESB sem innleidd var hér á landi í lögum um stjórn vatnamála.
Frestur til að svara beiðninni var gefinn til 2. mars og síðar framlengdur til 17. mars að ósk íslenskra stjórnvalda. Þetta er tíminn sem er liðinn frá því fresturinn rann út:
Önnur bresk matvörukeðja hættir sölu á sjókvíaeldislaxi vegna dýravelferðarsjónarmiða
Breska verslunarkeðjan Field & Flower hefur ákveðið að hætta sölu á eldislaxi úr sjókvíum og taka þessi í stað til sölu landeldislax frá Íslandi og Noregi. Forráðamenn keðjunnar segja að ástæðan sé hrikalegur dýravelferðarvandi í sjókvíaeldi, en um 40 prósent...
Ísland til umfjöllunar í The Sunday Times: Landeldi er framtíðin
Ísland er í fókus í margra blaðsíðna forsíðugrein The Sunday Times Magazine sem fjallar um hrikalegar afleiðingar laxeldis í opnum sjókvíum fyrir umhverfið og villta laxastofna og hvernig landeldi getur verið lausn fyrir þá sem vilja halda áfram að borða lax....
Merkileg norsk heimildamynd: The Salmon Story
Við mælum eindregið með áhorfi á þessa stórmerkilegu norsku heimildarmynd. Hún sýnir afleiðingar sjókvíaeldis á norska villta laxastofninn en um tveir þriðji hluti hans ber nú merki um erfðablöndun við eldislax. The Salmon Story er á Vimeo. Share this informative film...
Listi yfir veitingahús og verslanir sem sniðganga sjókvíaeldislax
Hér er listi yfir veitingahús og verslanir sem hafa staðfest að þar er ekki boðið upp á eldislax úr sjókvíum. Helstu matvöruverslanir landsins eru allar með eldislax úr landeldi og vel merktan sem slíkan. Ef vara með laxi er ekki upprunamerkt má fastlega gera ráð...
Tesco hættir að selja eldislax úr skosku sjókvíaeldi Bakkafrost vegna ásakana um dýraníð
Breska matvörukeðjan Tesco hefur hent eldislaxi frá skosku eldi færeyska sjókvíaeldisfyrirtækisins Bakkafrost út úr verslunum sínum vegna hræðilegar meðferðar á eldislöxunum. Við getum verið stolt yfir því hér á landi eru matvöruverslanirnar fyrir löngu búnar að losa...
Stöndum með íbúum Tierra del Fuego gegn ágengni sjókvíaeldisiðnaðarins
Við hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum stöndum með íbúum héraðsins Tierra del Fuego, sem er á syðsta odda Argentínu, gegn ágangi sjókvíaeldisiðnaðrins. Það vakti réttilega heimsathygli þegar héraðsþing Tierra del Fuego bannaði 2021 sjókvíaeldi á laxi og stöðvaði þar...
Taprekstur Arctic Fish heldur áfram: Hefur ekki greitt krónu í tekjuskatt frá stofnun, árið 2011
Á tímabilinu júlí, ágúst og september var rekstrartap Arctic Fish 980 milljónir króna. Þetta gríðarlega tap bætist við 637 milljón króna tap fyrstu sex mánuði ársins. Samtals nemur því tap félagsins á árinu rúmlega 1,6 milljarði króna. Samkvæmt árshlutauppgjöri...
Norsk rannsókn sýnir fram á umfangsmikla mengun frá sjókvíeldi þar í landi
Kemísk mengun, örplast, þungmálmar, lyf og eiturefni, frá sjókvíaeldi er gríðarlega mikil en stjórnmálamenn handgengir þessum iðnaði gengu þannig frá löggjöfinni um fiskeldi að erfitt er að taka á þessari stórskaðlegu hlið iðnaðarins. Í skýrslunni sem Vá segir hér frá...
Spaugstofa meðvirkninnar: Leikþáttur úr raunveruleikanum, eftir Katrínu Oddsdóttur
Meðvirkni stofnana sem eiga að gæta hagsmuna almennings en hafa ekki gert það, heldur þvert á móti staðið vörð um sérhagsmuni, er óskiljanleg. STJÓRNSÝSLU-SPAUGSTOFAN: ÞÁTTUR NÚMER 2321. (Lööööng reynslusaga í morgunsárið á laugardegi) Nú hef ég í um tvö ár fengist...
Þungum áhyggjum lýsti í sérstakri bókun við fundargerð Fiskisjúkdómanefndar vegna útbreiðslu laxalúsar
Í sérstakri bókun í nýjustu fundargerð Fisksjúkdómanefndar Matvælastofnunar (MAST) koma fram þungar áhyggjur af mikilli útbreiðslu fiski- og laxalúsar í sjókvíum með eldislax við landið: „Fisksjúkdómanefnd vill þó árétta alvarlega stöðu vegna þeirra viðvarandi...
Tapreksturinn heldur áfram hjá Arnarlaxi
Rekstrartap móðurfélags Arnarlax nam þremur milljörðum króna (20,7 milljónum evra) fyrstu níu mánuði ársins en það er nærri þrefalt hærri upphæð en á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í frétt á vef ff7. Öll sjókvíaeldisfyrirtækin hér við land hafa tapað gríðarlegum...
Mowi svipt breskri vottun: Ekki talið boðlegt á borð konungs vegna meðferðar á eldisdýrunum
Móðurfélag Arctic Fish, norski sjókvíaeldisrisinn Mowi, hefur verið svipt vottun sem breskar matvörukeðjur horfa til þegar ákveðið er hvaða vörur eru teknar til sölu. Ástæðan er hrikaleg meðferð starfsmanna á eldislöxunum. Dýravelferðarsamtök tóku upp aðfarir...











