Í sérstakri bókun í nýjustu fundargerð Fisksjúkdómanefndar Matvælastofnunar (MAST) koma fram þungar áhyggjur af mikilli útbreiðslu fiski- og laxalúsar í sjókvíum með eldislax við landið:

„Fisksjúkdómanefnd vill þó árétta alvarlega stöðu vegna þeirra viðvarandi vandamála og neikvæðrar þróunar í útbreiðslu fisk- og laxalúsar í eldi og vaxandi lyfjaónæmis … Jafnframt er brýnt að fyrirtækin axli aukna ábyrgð á forvörnum gegn lús, m.a. með aukinni notkun mekanískra aðferða í stað lyfjameðhöndlunar, til að undirbúa greinina betur fyrir næstu ár og til framtíðar.

Í fundargerðinni kemur fram að nefndin ráðleggur að veitt verði heimild til að eitra fyrir lús í 23 sjókvíum í Patreksfirði og Dýrafirði. Kemur þetta í kjölfar þess að eitrað var í 64 sjókvíum í september og október.
Vaxandi þungi er í bókunum Fisksjúkdómanefndar um viðvarandi lúsasmit sem sjókvíaeldisfyrirtækin ráða augsýnilega ekkert við. Í fundargerð frá fundi nefndarinnar í september er þessi bókun:

„Fisksjúkdómanefnd telur verulegt áhyggjuefni hvernig þróun fiski- laxalúsar hefur verið nú og undanfarin ár m.a. í ljósi þess að hætt verður framleyðslu á lúsalyfinu Alpha Max vet., á næsta ári.“

Fisksjúkdómanefnd er skipuð til fimm ára af atvinnuvegaráðherra og er Matvælastofnun til ráðgjafar um framkvæmd laga um varnir gegn fisksjúkdómum.

Hvorki er að sjá að atvinnuvegaráðherra né stjórnendur MAST hafi brugðist við ítrekuðum bókunum nefndarinnar um alvarlegt ástand vegna mikillar útbreiðslu laxa- og fiskilúsar í sjókvíaeldi.

Fiski- og laxalús ógnar bæði villtum laxfiskum (laxi, sjóbleikju og sjóbirtingi) og er meiriháttar dýravelferðarmál fyrir eldislaxana sem þurfa að þola margfalt meira lúsasmit heldur en getur orðið við náttúrulegar aðstæður.

Lúsin veldur veldur skelfilegum áverkum á eldislaxi. Skilur eftir sig stór sár og étur sig inn að beini þannig að skín í hvíta höfuðkúpu eldisalaxanna.

Við trúum ekki öðru en að viðbragða sé að vænta við endurteknum bókunum Fisksjúkdómanefndar frá ráðherra og stjórnendum MAST. Þær eru örugglega ekki hugsaðar sem ákall út í tómið heldur skilaboð til ráðherrans og stofnunarinnar sem bera ábyrgð á málaflokknum.

Myndin sýnir ástand eldislaxa í sjókvíum Arctic Fisk í Tálknafirði eftir að fyrirtækið sinnti forvörnum gegn laxalúsasmiti ekki betur en svo að um 1,7 milljón fiska litu svona hrikalega út þegar neyðarslátrun hófst.