Breska verslunarkeðjan Field & Flower hefur ákveðið að hætta sölu á eldislaxi úr sjókvíum og taka þessi í stað til sölu landeldislax frá Íslandi og Noregi.

Forráðamenn keðjunnar segja að ástæðan sé hrikalegur dýravelferðarvandi í sjókvíaeldi, en um 40 prósent eldislaxanna deyr kvalafullum dauða í sjókvíunum áður en eldislotunni lýkur.

Með ákvörðun sinni fetar Field & Flower í fótspor annarra breskrar verslunarkeðju, Able & Cole, sem hætti sölu á sjókvíaeldislaxi fyrr á árinu og býður nú aðeins lax úr landeldi í verslunum sínum.

Gríðarlegur dauði eldislaxa er meiriháttar vandamál í sjókvíaeldi og í raun hneyksli að fyrirtækin komist upp með þessa meðferð á eldisdýrunum.

Fram hefur komið í tölum frá First Water, landeldisfyrirtækinu sem er staðsett við Þorlákshöfn, að afföll í eldislotu þess eru innan við 3 prósent. Til samanburðar hafa afföllin hjá íslensku sjókvíaeldisfyrirtækjunum verið yfir 40 prósent að meðaltali á undanförnum árum.

Á opnum fundi samtakanna Iceland Sif, sem eru óháður vettvangur fyrir umræðu og fræðslu um sjálfbærar og ábyrgar fjárfestingar, í Arion banka í síðustu viku var gæðastjóri Arnarlax, Silja Baldvinsdóttir, spurð að loknu erindi hennar hvort Arnarlax myndi styðja lagabreytingar á þá leið að sjókvíaeldisfyrirtækin myndu missa framleiðsluleyfi ef afföll færu yfir 10 prósent í eldislotu.

Lýsandi er að hún neitaði að svara spurningunni efnislega og vísaði þess í stað á fjarstaddan forstjóra Arnarlax með svör.

Hitt er á hreinu að þessi atburðarrás, að neytendur hafni matvöru sem er framleid með svona ómannúðlegum og mengandi hætti, er farin af stað. Og hún verður ekki stöðvuð.

Land-based salmon gains UK customer as retailer exits open-net farming