Við hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum stöndum með íbúum héraðsins Tierra del Fuego, sem er á syðsta odda Argentínu, gegn ágangi sjókvíaeldisiðnaðrins.
Það vakti réttilega heimsathygli þegar héraðsþing Tierra del Fuego bannaði 2021 sjókvíaeldi á laxi og stöðvaði þar með öll áform iðnaðarins um að koma sér fyrir við strendur Argentínu því aðrir hluta strandlengjunnar henta ekki fyrir sjókvíaeldi.
Nú hefur fulltrúum þessa ómannúðlega og mengandi iðnaðar tekist að fá sér handgengna stjórnmálamenn til að leggja fram tillögu á héraðsþingi Tierra del Fuego um að draga bannið til baka.
Grátlegt er að horfa upp á hversu stjórnmálastéttin víðast um heim er veik fyrir þrýstingi vel fjármagnaðra sérhagsmunahópa sem berjast fyrir mögulegum gróða fárra á kostnað náttúru og lífríkis, og þar með alls almennings.
Við skorum á héraðsþing Tierra del Fuego að halda sig við bann og standa vörð um gríðarleg verðmæti sem felast í óspilltri náttúru og lífríki Suður-Argentínu!