Hér er listi yfir veitingahús og verslanir sem hafa staðfest að þar er ekki boðið upp á eldislax úr sjókvíum.
Helstu matvöruverslanir landsins eru allar með eldislax úr landeldi og vel merktan sem slíkan.
Ef vara með laxi er ekki upprunamerkt má fastlega gera ráð fyrir að hún innihaldi eldislax úr sjókvíum.
Framleiðendur sjókvíaeldislax hafa staðfastlega komið sér undan að upprunamerkja framleiðslu sína. Þetta á líka við um til dæmis fæðubótarefnið Unbroken, sem við hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum höfum fengið ábendingar og fyrirspurnir um, en það inniheldur eldislaxaprótein úr norsku sjókvíeldi.