Rekstrartap móðurfélags Arnarlax nam þremur milljörðum króna (20,7 milljónum evra) fyrstu níu mánuði ársins en það er nærri þrefalt hærri upphæð en á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í frétt á vef ff7.

Öll sjókvíaeldisfyrirtækin hér við land hafa tapað gríðarlegum fjárhæðum á þessu ári.

Þegar Icelandic Salmon, móðurfélag Arnarlax, var skráð á íslenska First North hlutabréfamarkaðinn haustið 2023 stóð gengi félagsins í 174 krónum. Í dag er það 86 krónur, sem þýðir um 50 prósent lækkun.

Tvöfalt meiru slátrað en tapið þrefaldast