Fréttir
Íslensk stjórnvöld svara ekki upplýsingabeiðni ESA, eftirlitsstofnunar EFTA
ESA, eftirlitsstofnun EFTA , sendi erindi til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, sem fulltrúa íslenskra stjórnvalda, þann 30. janúar, með beiðni um upplýsingar um útgáfu leyfa fyrir sjókvíaeldi án þess að flokkun á ástandi vatnshlota lægi fyrir áður. Það gengur gengur vatnatilskipun ESB sem innleidd var hér á landi í lögum um stjórn vatnamála.
Frestur til að svara beiðninni var gefinn til 2. mars og síðar framlengdur til 17. mars að ósk íslenskra stjórnvalda. Þetta er tíminn sem er liðinn frá því fresturinn rann út:
Er laxalús hættulegri en talið var?
Svarið við spurningunni í fyrirsögninni er já, en hversu skaðleg laxalús er villtum laxi hefur hinsvegar verið vitað í töluverðan tíma þó þessi fagmiðill um laxeldi hafi ekki sýnt því verðskuldaðan áhuga. Á vef MBL er að finna vandaða fréttaskýringu um rannsóknina sem...
Launalækkunaratlaga Arctic Fish og Arnarlax sendir nærsamfélagi fyrirtækjanna skýr skilaboð
Arctic Fish lokaði starfstöð sinni á Þingeyri við Dýrafjörð í fyrra og stórlækkar nú laun starfsfólks. Þessi fyrtæki hafa alltaf hag hluthafanna fyrst og síðast í huga. Ekki starfsmanna og alveg örugglega ekki byggðarlaganna þar sem þau starfa. Sérhagsmunir...
Arnarlax segist eiga landreknu kvína í Patreksfirði
Forstjóri Arnarlax segir fyrirtækið rannsaka hvernig flothringur úr sjókví losnaði og rak á land. Samkvæmt meðfylgjandi frétt veit forstjórinn ekki hvernig né hvenær flothringurinn losnaði. Svona hringur er engin smásmíði, tugir metrar að þvermáli. Arnarlax týndi...
Tekist á um lagareldisfrumvarp Viðreisnar í Morgunútvarpi Rásar 2
Talsmaður okkar hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum, Jón Kaldal, og þingmaður Viðreisnar, Ingvar Þóroddson, ræddu frumvarpsdrög atvinnuvegaráðherra við Gunnu Dís og Frey Eyjólfsson í morgunúrvarpinu á Rás 2 milli 7.30 og átta í morgun. Þar var tekist á af festu en...
Launalækkanir Arnarlax og Arctic Fish voru fullkomlega fyrirsjáanlegar
Þrátt fyrir að aldrei hafi verið meira magn af eldislaxi í sjókvíunum en í vetur eru Arnarlax og Arctic Fish að segja upp fólki, loka starfsstöðvum og lækka laun. Það er sorglegt að fólkið fyrir vestan hafi ekki áttað sig fyrr. Þetta var allt svo fyrirsjáanlegt og við...
Lögregla rannsakar uppruna kvíar sem rak á land í Patreksfirði
Lögreglan er samkvæmt frétt RÚV að athuga hvaðan kvíin kom og hver er eigandi hennar. Samkvæmt okkar heimildum að vestan er Arnarlax eigandinn og virðist ekki hafa áttað sig á að kvíin hafði rekið af stað. Í fréttinni kemur fram að lögreglan vinnur að því að tjóðra...
„Þegar „erlend afskipti“ eru aðeins vandamál ef þau þjóna náttúrunni“ – Arndís Kristjánsdóttir skrifar
„Vel á þriðja þúsund umsagnir bárust í samráðsgátt vegna lagereldisfrumvarpsins, þar af stór hluti erlendis frá. Atvinnuvegaráðherra Íslands reynir nú að gera þann áhuga aðalatriði í umræðunni um meingölluð frumvarpsdrögin; ekki frumvarpið sjálft, ekki fullkominn...
Sjókvíaeldisfyrirtækin segja upp starfsfólki til endurráða það á lakari kjörum
Í frétt RÚV (sjá hér að neðan) segir frá því að ráðningarsamningum starfsfólks hjá sjókvíaeldisfyrirtækjunum Arctic Fish og Arnarlaxi verður sagt upp til að hægt sé að breyta kjörum. Formaður félags skipstjórnarmanna segir í fréttinni það á ábyrgð fyrirtækjanna að...
„Nei elskan, við eigum hlutfall af heildarlaxamagni heima“ – Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar
Í gær í Kastljósi hlustuðum við á atvinnuvegaráðherra reyna að segja fólki að eitthvað er allt öðruvísi en það er þó sannanlega í raun og veru. Við kunnum ekki við þessa innfluttu aðferð úr stjórnmálaumræðu annarra landa: að fólk eigi ekki að trúa eigin augum....
„Óeðlilegu afskipti Hönnu Katrínar“ – Jón Kaldal skrifar
Atburðir gærdagsins teknir saman hér. Greinin birtist á Vísi: Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra mætti til varnar meingölluðum frumvarpsdrögum sínum um lagareldi í Kastljósi í gærkvöldi. Margt var þar sagt sem ekki rímar vel við raunveruleikann. Furðulegt...
Hanna Kristín gerði ekki gott mót í Kastljósi: Furðulegar fullyrðingar og undarlegir útúrsnúningar
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra gerði ekki gott mót í Kastljósi í kvöld í umræðum um drögin að frumvarpi um lagareldi. Listinn er langur sem þarf að leiðrétta. Furðulegt var meðal annars að heyra hana fullyrða um framfarir í vernd náttúrunni og villtra...
Stórundarleg vinnubrögð atvinnuvegaráðuneytisins við samningu frumvarps til laga um lagareldi
Eins og lesendur þessarar síðu vita höfum við allt frá því að drög Hönnu Katrínar Friðrikssonar atvinnuvegaráðherra að frumvarpi til laga um lagareldi komu fram í desember velt því fyrir okkur hvað væri í gangi í ráðuneytinu. Stórmerkilegar upplýsingar komu fram í...











